FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH 1 Grindavík 1

Tweets

Fótbolti.net

Gunnar Már "Boxaranef, glóðurauga og skurður"
Jónas Ýmir Jónasson    Þri, 11. maí 2010   
Boxaranef, glóðurauga og skurður

Boxaranef, glóðurauga og skurður

Við heyrðum í Gunnari Má Guðmundssyni eftir leikinn gegn Valsmönnum í gær. Gunnar var að vonum hundfúll með að ná ekki öllum stigunum þrem en hann fékk einnig tvisvar spörk í andlitið og leit út fyrir að hafa staðið 12 lotur gegn Mike Tyson eftir leikinn.

smelltu á lesa meira til að lesa hvað kappinn hafði að segja.

 Fyrsti leikur að baki, þú ert væntanlega hundfúll að fá bara eitt stig úr
þessum leik?

Já maður er fúll og svekktur með að hirða ekki öll 3 stigin á móti Val
Þetta er lið sem við eigum alltaf að vinna ef við spilum eins og menn.


Þú lýtur út fyrir að hafa orðið fyrir líkamsárás eftir leikin, hvernig
upplifðir þú þessi atvik?


Já maður er með svona boxaranef og skurð undir auganu eftir þennan leik.
En hjólhestarspyrna í andlitið er það ekki bara líkamsárás ? Mér datt ekki
í hug að nokkur maður myndi reyna svona vitleysu inna miðjum vellinum og
fór því algjörlega áhyggjulaus uppí skallabolta og fékk þá löppina hans
beint í andlitið! og nota bene þá þurfti ég að hoppa upp til að ná þessum
bolta.

En seinna atvikið var bara eitthvað bull í þessum danska hjá Val hann
stekkur uppúr tæklingu og traðkaði á hausnum á mér. Lítið hægt að gera við
því ef dómarinn sér það ekki.

Nú er bara næsti leikur og allir fhingar sætta sig ekki við neitt nema
sigur gegn Haukunum, hvernig leggst sá leikur í þig?


Hauka leikurinn leggst vel í mig þetta verður baráttuleikur. Það þarf ekki
mótivera menn fyrir leik gegn Haukum held að það sé öllum ljóst að þetta
er leikur sem að við förum í til að vinna og þurfum að mæta þeim í
baráttunni. Haukarnir munu gefa allt í þennan leik og við þurfum að mæta
því.

 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson