
| ÍA | 9 |
| FH | 7 |
| Valur | 6 |
| Stjarnan | 5 |
| Keflavík | 4 |
| KR | 4 |
| Breiðablik | 4 |
| Fram | 3 |
| Selfoss | 3 |
| Fylkir | 2 |
| ÍBV | 1 |
| Grindavík | 1 |
| Viðtal við Hólmar Örn | |
|
Við höfðum samband við nýjan leikmann FH Hólmar Örn Rúnarsson og spurðum hann nokkurra spurninga, smellið á "lesa meira" til þess að sjá hvað Hólmar hafði að segja.Hver er Hólmar Örn Rúnarsson? Hann er 28 ára Keflvíkingur. Rauðhærður/myndarlegur. Meðalgreindur. 176 cm og 71kg. Á konu og tvö börn. Stundar nám í HR. Áhugamál eru íþróttir þó aðallega fótbolti og körfubolti. Var ekki erfitt að yfirgefa sína heimastöð í Keflavík? Jú það var ekki auðveld ákvörðun að yfirgefa Keflavík en ég taldi það vera best fyrir mig að prófa eitthvað nýtt. Voru fleiri lið en FH og KR að eltast við þig? Já það voru einhver lið sem höfðu áhuga. Afhverju FH frekar en KR t.d? Ég valdi FH að því að það er flottur klúbbur og ég held að það henti mér ágætlega að spila með þeim. Auk þess var minn gamli samherji og mikill Keflvíkingur Gunnleifur Gunnleifsson að reyna lokka mig í Krikann. Hverjar eru þínar væntingar til Fimleikafélagsins? Að geta bætt mig sem leikmaður, spila góðan fótbolta og vinna titla. Nú er ljóst að það verður gríðarleg samkeppni um stöðu á miðjunni hjá FH, það er ekkert sem hræðir þig? Nei ég get ekki sagt að það hræði mig. Það er bara tilhlökkun að fá að berjast um sæti í liðinu. Svoleiðis á það að vera. Hvernig hljómaði stuðningsmannalagið þitt hjá Keflavík? Hólmar Örn Rúnarsson Rúnarsson Hólmar Örn Rúnarsson Rúnarsson taktu nú boltann og negldu honum inn Hólmar Örn Rúnarsson Rúnarsson. Heldurðu að Drummerinn eigi eftir að fyrirgefa þér þetta? Hehe ég veit það ekki jú eigum við ekki að vona að hann geri það einn daginn. |