FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH Grindavík

Tweets

Fótbolti.net

Viðtal við Óla Palla
Jónas Ýmir Jónasson    Þri, 10. ágúst 2010   

Ólafur Páll Snorrason kom aftur til FH fyrir um ári síðan eftir að hafa verið í Fjölni og síðan Val.  Hann hefur í ár líklegast átt sitt besta tímabil hingað til og var á sunnudagskvöld kallaður í landsliðshópinn.  Við spurðum hann útí Blikaleikinn, A-Landsliðið og stórleikinn á laugardag

Hvernig var stemmningin í mönnum eftir jafnteflið í gær? voru menn svekktir að ná ekki að klára leikinn?

Stemmningin er fín. Menn eru vissulega fúlir að hafa ekki náð að landa sigri undir lokin þegar færi gáfust til þess en á meðan við missum þessi lið ekki lengra frá okkur þá erum við vongóðir. Við þurfum að klára okkar leiki og sjá svo hverju það skilar okkur í lok tímabils.

Þetta er stór vika fyrir þig, kom það þér á óvart að vera valinn í A-Landsliðið? Hvenar fékkstu að frétta að þú værir valinn?  Vikan var nú nógu spennandi fyrir, undirbúningur fyrir Bikarúrslit sem er náttúrulega bara skemmtilegt. Já, í hreinskilni sagt þá kom þetta mér á óvart og bjóst ég ekkert við því að vera valinn í landsliðið þar sem búið var að velja hópinn. þetta kemur upp strax eftir leikinn við blikana og ég þarf því strax að gíra mig inn í það að koma inn í hópinn og vonandi taka þátt í leiknum á einhverjum tímapunkti.

Stórleikur á laugardaginn, draumur allra stuðningsmanna að rætast að hafa leikinn á laugardalskvöldi.  Hvernig leggst þessi bikarúrslistaleikur í þig?

Já, mikill stórleikur á laugardag og veit ég að það er mikil tilhlökkun í hópnum að taka þátt í þessum leik. Ég hugsa að það sé líka draumur hvers knattspyrnumanns á Íslandi að leikurinn sé spilaður á þessum tíma. Leikurinn sjálfur leggst mjög vel í mig, KR ingar hafa verið á miklu skriði undanfarnar vikur og verður þetta eflaust mjög erfiður leikur fyrir bæði lið.

 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson