|

Torger Motland er 25 ára framherji sem er fæddur í Stavanger í Noregi. Hann hefur spilað með liðum á borð við Viking Stavanger, Bryne og núna síðast IF Stavanger. Motland verður hjá FH út leiktíðina og hefur hingað til skorað eitt mark fyrir Fimleikafélagið. Smellið á Lesa Meira til að lesa hvað þessi viðkunnalegi kappi hafði að segja við okkur á www.fhingar.net
Nú ertu búin að búa í Hafnarfirði í næstum 2 mánuði, hvernig líkar þér bærinn og fólkið hingað til? Tími minn í firðinum hingað til er búin að vera frábær, ég hef hitt og kynnst mikið af góðu fólki
Vissirðu eitthvað um FH og íslenskan fótbolta áður en þú komst?
Svolítið, en ekki mikið, ég talaði auðvitað við leikmenn frá Noregi sem höfðu spilað hér á landi, og hinn góða vin minn Birkir, þeir höfðu ekkert nema gott að segja um landið og FH.
En hvað með FH, hvernig lýst þér á félagið og liðið?
frábærlega, æfingarnar eru öflugar og það er vel æft,leikmennirnir eru frábærir sem og þjálfararnir, Sigrarnir munu koma!
Ef þú berð saman æfingaaðstæður hér og í Noregi, hver er munurinn?
Öll aðstaða hér er mjög góð, en þetta er afar misjafnt í Noregi.
Allan Borgvardt er goðsögn meðal stuðningsmanna FH, þú spilaðir með honum í Bryne ekki rétt? Talaðirðu við hann áður en þú gekkst til liðs við FH?
Það er rétt, ég spilaði með Allan í Bryne, hann sagði ekkert nema frábæra hluti um FH. Allan er frábær maður og góður leikmaður
Nú hefur byrjunin á tímabilinu valdið miklum vonbrigðum, hvað er til ráða?
Við töpum saman og við vinnum saman, það sem er mikilvægast er að við stöndum öll saman. Leikmennirnir, þjálfarnir og stuðningsmenn.
Þú skoraðir fyrsta markið þitt fyrir félagið á dögunum, það hlýtur að hafa verið góð tilfinning?
Það er alltaf gott að skora mörk, en á meðan að við sigrum ekki þá breytir það engu. Og ég mun gera allt sem ég get fyrir félagið svo við getum farið á sigurbraut á ný.
Að lokum, þú heitir Torger Motland, en hvað ertu kallaður af vinum þínum?
Vinir mínir kalla mig Togga. |