FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH 1 Grindavík 1

Tweets

Fótbolti.net

Stutt spjall við Heimir
Árni Rúnar Karlsson    Mán, 24. maí 2010   

Við höfðum samband við Heimir Guðjóns og lögðum fyrir hann fáeinar spurningar. Smellið á "lesa meira" til þess að sjá svörin hjá kappanum.

 

 

Sæll Heimir,
 
3 leikir búnir og 4 stig í hús. eru menn sáttir með það?
Nei að sjálfsögðu ekki, FH fer í alla leiki til að vinna þá.
 
Liðið búið að fá á sig 5 mörk í þessum 3 fyrstu leikjum, er það ekki áhyggjuefni?
Við erum búnir að fá á okkur 5 mörk, sem er of mikið miðað við 3 spilaða leiki. Það lagast ekki nema allir leikmenn liðsins spili vörn.
 
Nú komu Matti,AtliG og Hjörtur inn á sem varamenn í gær. Fer þetta ekki allt að smella saman hjá okkur núna þegar meiddu mennirnir eru að koma inn?
Gott að við séum að fá leikmenn til baka. Það er mikilvægt að hafa úr sem flestum að velja en þessi leikur snýst um liðsheild og menn þurfa einfaldlega að snúa saman bökum og mæta tilbúnir í Breiðabliksleikinn.
 
Einn ljós punktur í leiknum í gær var að Motland skoraði sitt fyrsta mark og lék ágætlega. Þú ert væntanlega sáttur með það?
Já að sjálfsögðu er ég sáttur við að hann skoraði mark.
 
Hvernig hefur þér fundist daninn Jacob Neestrup koma út hingað til og hverjir eru hans styrkleikar?
Hann er góður miðjumaður, fínar sendingar og getur opnað á sér munninn og látið í sér heyra.
 
Þú fékkst Bjarka Gunnlaugsson til liðs við FH, hvaða hlutverk fær hann hjá þér í FH liðinu?
Hann er fyrst og fremst hugsaður sem leikmaður sem getur hjálpað FH – liðinu þegar líður á sumarið.
 
Leikur við Breiðablilk næst, hvernig leggst sá leikur í þig og hverjir eru styrkleikar Blikana?
Hann leggst vel í mig. Breiðablik er með mjög vel spilandi lið og marga spræka stráka. Þeir eru góðir að halda boltanum innan liðsins og vel skipulagðir.
 
ÁFRAM FH
Kv. Heimir

 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson