FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH Grindavík

Tweets

Fótbolti.net

Spjall við Heimir
Árni Rúnar Karlsson    Mán, 15. mars 2010   

Við höfðum samband við Heimir Guðjóns og spurðum hann út í nokkra hluti. Smellið á "lesa meira" til þess að sjá hvað Heimir hafði að segja. 

Sæll Heimir,

Deildarbikarinn byrjaður að rúlla, hvernig eru menn að koma undan vetri? 

 

Ágætlega, undirbúningur liðsins hefur verið svipaður og síðustu ár.  Við erum á áætlun og verðum vonandi klárir þegar Íslandsmótið byrjar.  Menn hafa heyrt af því að Ásgeir Gunnar hafi meiðst nýlega, hvernig er staðan á honum?

Ásgeir fór í speglun á hné sl. föstudag. Reiknum með að hann geti byrjað að æfa eftir þrjár vikur

Verður Hjörtur Logi klár fyrir mótið?

Nei reikna ekki með því. En á móti kemur að Hjörtur Logi er gríðarlega duglegur að vinna í sínum málum þegar hann er meiddur. Eitthvað sem aðrir ungir leikmenn mættu taka sér til fyrirmyndar. Þannig það kæmi ekki á óvart að hann yrði fyrr að jafna sig heldur en reiknað er með.

 Hvernig hefur norski framherjinn Mortland verið að gera sig?

Hann hefur staðið sig vel á æfingum en hann náði kannski ekki að sýna sínar bestu hliðar í leiknum á móti Breiðablik. Ekkert frekar en aðrir leikmenn í leiknum þar sem okkur var rúllað upp af mjög spræku Blikaliði.

Ertu að leita að eftir að styrkja fleiri svæði í liðinu?

Já. 

Hvern sérðu fyrir þér leysa skarðið sem að Davíð Þór skildi eftir sig?

Það eru nokkrir sem koma til greina, en það er ljóst að skarðið hans Davíðs verður vandfyllt.

 Eru einhverjar líkur á því að Söderlund komi aftur til FH í sumar?Nei, hann er búinn að semja við lið á Ítalíu.  

Matti Vill var gerður að fyrirliða FH, einhver sérstök ástæða fyrir því?

Matthías hefur verið vaxandi í leik FH-liðsins síðustu tvö ár. Hann býr yfir leiðtogahæfileikum sem við vonum að geti nýst FH-liðinu.

 Áfram FH.

 

 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson