FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH Grindavík

Tweets

Fótbolti.net

Viðtal við Hjört Loga
Árni Rúnar Karlsson    Lau, 20. febrúar 2010   

Við höfðum samband við Hjört Loga Valgarðsson og spurðum hann út í meiðslin og hvernig sumarið leggst í hann. Smellið á "lesa meira" til þess að sjá hvað Hjörtur hafði að segja. 

Hvað er það nákvæmlega sem er að hrjá þig?

Það sem er að hrjá mig núna er hið víðfræga fimmta metatarsal(ristin) bein í hægri fæti en það kom álagsbrot í það, og ég lenti í því sama árið 2008.

Verðurðu klár fyrir mót?

Stefnan er sett á að vera orðinn heill en það er erfitt að segja nákvæmlega hvenar ég verð klár. Ég fer í aðgerð á föstudaginn og læt skrúfa beinið saman, þannig að þetta vandamál ætti að vera úr sögunni. Svo mun ég gera allt sem í mínu valdi stendur til þess að verða klár sem allra fyrst.

Voru einhverjar hreyfingar erlendis frá áður en þú meiddir þig?

Það er oft einhvað í gangi en ekkert alvarlegt. Ég stefndi alltaf á að spila sumarið hér í FH og vinna tvöfalt og svo ætlaði ég að sjá til, þannig að þessi meiðsli breyta svosem ltilu með það að gera.

Nú hafa verið breytingar á leikmannahópi FH í vetur. Hvernig lýst þér á það?

Mér lýst bara vel á þetta allt saman. Góðir leikmenn fóru en við erum enþá með frábæra leikmenn og höfum einnig fengið sterka leikmenn til liðs við okkur. Við yngri leikmennirnir verður bara betri og betri og nú er tækifæri fyrir okkur að stíga upp og bera meiri ábyrgð.

Hvernig hefur þér litist á nýju mennina?

Mér lýst mjög vel á nýju mennina. Herra Fjölnir er náttúrulega 3 m á hæð og ekki leiðinlegt fyrir menn eins og mig að vita af honum inní boxi til að gefa fyrir á, svo getur hann einnig spilað margar stöður á vellinum og hann á eftir að smell passa inní spilið hjá okkur í sumar. Gulli er frábær markmaður eins og allir vita, kannski eina vandamálið með hann er að hann heldur of mikið með Hk en það á eftir að breytast. Svo er líka frábært að fá Jón Ragnar aftur, hann átti gott tímabil með Þrótti í fyrra og hann kemur til með gera atlögu að hægri bakvarða stöðunni í sumar, og svo er hann frábær tónlistar maður og það skemmir ekki fyrir.

Hvernig leggst næsta sumarið 2010 í þig?

Sumarið leggst yndislega í mig. Ég hef fulla trú á að við getum gert betur í ár en í fyrra, þó að 2009 hafi ekki verið slæmt ár. Við erum með mjög sterkan leikmannahóp og vitum nákvæmlega hvað þarf til þess að ná árangri. Einnig með tilkomu Hauka í efstu deild held ég að stemningin og áhuginn verði meiri í ár en nokkurt annað, þannig að það er mikil tilhlökkun í mér.


Áfram FH

Kv Logi Valg

 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson