FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH 1 Grindavík 1

Tweets

Fótbolti.net

Viðtal við Björn Daníel
Árni Rúnar Karlsson    Fim, 11. febrúar 2010   
Bjössi Maradona

Bjössi Maradona

 Við höfðum samband við Björn Daníel og spurðum hann út í ýmislegt, smellið á "lesa meira" til þess að sjá hvað Björn hafði að segja.

 

Sæll Björn,

 

Hvernig hefur gengið hjá þér að yfirstíga þín meiðsli?

 

Það hefur gengið yndislega með hjálp frá hinni ótrúlegu Kolbrúnu sjúkraþjálfara. Ég hef lítið sem ekkert fundið fyrir þessum álagsmeiðslum síðan í maí 2009. Náði samt aldrei að koma mér í almennilegt stand í fyrra eftir þessi löngu og pirrandi meiðsli.

 

Komum við til með að sjá 100% Björn Daníel í sumar?

 

Já ef ekkert kemur upp á og það er nátturulega það sem maður vonar. Gæti verið að ég verði meira að segja 110% sumarið 2010. ;)

Hvaða stöðu finnst þér best að spila? Byrjunarliðið er auðvitað skemmtilegasta staðan, en að öllu gríni slepptu þá finnst mér best að vera á milli fremsta miðjumanns og aftasta, s.s. a miðri miðjunni.

 

Þú spilaðir varnarsinnaðan miðjumann gegn Stjörnunni í fyrra, ert þú maðurinn til þess að leysa Davíð af hólmi kannski?

 

Það er nú enginn barnaleikur að þurfa leysa stöðu Daffyd sem var eins og herforingi þarna í mörg ár, þo svo að hann sé nettur gaur og allt það þá er eg mikið betri en hann og hann veit það alveg sjálfur. ;) En í leikjunum í vetur er ég búinn að vera spila þessa stöðu töluvert mikið og bara staðið mig ágætlega að ég held. En hvort að ég sé maðurinn til að leysa hana verður bara Heimir að ákveða.

 

Hafa verið einhverjar þreifingar erlendis frá?

 

Það var aðeins eftir síðasta sumar þá voru einhver norsk lið sem vildu fá mig á reynslu en þar sem ég spilaði ekki eins mikið og ég vildi að eg hefði gert í fyrra og var ekki i toppstandi þá ákvað ég að sleppa því að fara á reynslu. Ég er líka nýbúinn að skrifa undir samning við FH og er bara hrikalega sprækur og ánægður hér.

Hvað stefnirðu á að setja mörg mörk í sumar? Setti 4 í fyrra, segjum að ég setji 7 i deildinni og 11 með bikar og evropu ;)

 

Hvernig hefur þér litist á nýju mennina hjá FH?

 

Bara mjög vel. Það vita það náttúrulega allir að Gulli er besti markmaðurinn á landinu og maður hefur tekið eftir því hvað hann er hrikalega góður eftir að hafa æft með houm nuna siðustu manuði svo er hann líka City maður og það eru ekkert nema toppmenn sem halda með City. Enda eina liðið í Manchester borg. Gunnar Már hefur líka sýnt það að hann hefur verið einn af bestu leikmönnum deildarinnar siðustu ár og er fjölbreyttur leikmaður sem getur spilað margar stöður sem er frábær eiginleiki og frábær viðbót í liðið hjá okkur. 

 

 

p.s. Konni er þyngstur í liðinu!

 

 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson