
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| Hvernig lýst nýju mönnunum á FH? | |
|
|
Við erum auðvitað nýbyrjaðir og ástandið á leikmönnum er eins og það á að vera í desember. Við erum í undirbúning fyrir sumarið og erum rétt að byrja að byggja okkur upp. Ég er búinn að æfa í 1 og hálfan mánuð og er bara í sama prógrammi og aðrir. Við erum svolítið stífir og þungir núna, en það er samt mjög gott tempó á æfingum. Mér líkar mjög vel við allt hjá FH. Það er allt til fyrirmyndar hjá félaginu og við tilkomu nýju byggingarinnar er þetta orðið enn betra. Það eru margir mjög hæfileikaríkir strákar hjá okkur og ekkert því til fyrirstöðu að vera lengi í fremstu röð.
Þökkum Gunnleifi kærlega fyrir þetta.
|