FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH 1 Grindavík 1

Tweets

Fótbolti.net

Stutt viðtal við Davíð Þór
Árni Rúnar Karlsson    Mán, 07. desember 2009   

Við heyrðum aðeins hljóðið í Davíð, en sem kunnugt er gerði hann samning við Öster í Svíþjóð í síðustu viku. Smellið á "lesa meira" til þess að sjá hvað Davíð hafði að segja.


 
Hvernig tilfinning er það að vera kominn til Öster?

Hún er mjög góð, líst vel á bæinn, liðið og þeirra markmið. Ætla sér stóra hluti í framtíðinni og það verður gaman að taka þátt í því.

Hvert verður þitt hlutverk hjá Öster?

Mér er ætlað stórt hlutverk þarna og þeir binda miklar vonir við mig. Ég á að hjálpa liðinu að komast upp í efstu deild og ég stefni á að ná því takmarki.

Voru fleiri lið að reyna að fá þig?

Já, það voru fleiri lið sem að komu til greina, en mér leist best á Öster.

Þekkirðu eitthvað til í Svíþjóð?

Ég veit að höfuðborgin heitir Stokkhólmur. En já, ég þekki eitthvað til í Svíþjóð, hef nokkrum sinnum komið þangað og kann vel við Svía.

Var ekkert erfitt að yfirgefa FH?

Jú, það var að sjálfsögðu mjög erfitt. Hérna hef ég átt mínar stærstu stundir sem knattspyrnumaður og ég kveð félagið, leikmenn, þjálfara, stjórn og stuðningsmenn með miklum söknuði. En mér fannst þetta vera rétti tíminn til að prófa eitthvað nýtt og takast á við nýja áskorun.

Nú hafa þú,Tryggvi,Daði og Dennis yfirgefið FH. Hefurðu áhyggjur af þessu?

Nei, í rauninni ekki. Við erum ennþá með frábært lið og fullt af ungum og mjög efnilegum strákum sem eru eða eru að verða tilbúnir til að spila í efstu deild. Auðvitað eru of miklar breytingar aldrei góðar en ég er fullviss um það að Heimir og hjálparhellurnar hans fylli í skörðin og að FH verji titilinn að ári liðnu.

Hver heldurðu að verði arftaki þinn sem fyrirliði FH?

Það eru margir sem koma til greina en ég treysti þjálfurum fullkomlega fyrir þeirri ákvörðun.

Eitthvað að lokum til stuðningsmanna FH?

Þið hafið undanfarin ár stutt frábærlega við bakið á okkur og ég vona að þar verði engin breyting á. Það er mikilvægt að muna að velgengni síðustu ára er ekki sjálfsagður hlutur og eitthvað sem að við ættum bæði að vera stolt af og ekki síður þakklát fyrir. FH er ekki bara leikmennirnir, þjálfararnir, stjórnin eða stuðningsmenn heldur ein heild. Það er þessi heild sem hefur skapað velgengni síðustu ára og þarf að standa saman til að áframhald verði á.

Annars vil ég þakka ykkur fyrir stuðninginn síðustu ár og það er aldrei að vita nema þið munið bölva mér í sand og ösku einhvern tímann aftur í framtíðinni þegar ég klúðra enn einu dauðafærinu fyrir FH.


Þökkum Davíð Þór kærlega fyrir þetta og óskum honum velfarnaðar hjá Öster.

 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson