
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| Viðtal við Sverrir | |
|
|
Hvernig er staðan þín hjá Sundsvall núna? Verðurðu þar áfram? Ég er samningsbundinn Sundsvall til ársloka 2010. Breytist staða mín eitthvað þar mun það bara koma í ljós á næstu mánuðum. Sem gallharður FH ingur, sem átt þér fjöldan allan af stuðningsmönnum uppí Krika, langar þig ekki bara að koma og leika aftur í FH búningnum? Sér í lagi þegar pínulitla liðið úr Hafnarfirði er komið í hóp þeirra bestu? Auðvitað snertir það djúpa strengi að spila með FH, enda hef ég verið í Krikanum meira og minna síðan ég var smákrakki. Þú hefur þurft að glíma við erfið meiðsl á ferlinum, og margir muna kannski eftir því að þú misstir töluverðan tíma úr fyrir nokkrum árum, komst tvíefldur til baka. Þurfa menn ekki að vera léttgeggjaðir í skapinu til að ná sér á strik eins og þú hefur gert? Bilaðir af þrjósku? Nei, þvert á móti. Maður þarf bara að taka á svona mótlæti af yfirvegun og ró, þótt ákveðin þrjóska og sérkennilegt skap komi eflaust að einhverjum notum hjá mér. Það er alltaf gífurlega gaman í stúkunni þegar þú tekur fast á mönnum og tæklar eins og þér einum er lagið. Hvaða leikmann er skemmtilegast að tækla? Ég á vonandi ekki eftir að tækla neinn í klessu. Hins vegar get ég ekki neitað því að það getur verið skemmtilegra að tappa loftinu úr ákveðnum karakterum. Við nefnum engin nöfn. Hvað er eftirminnilegasti leikur sem þú hefur leikið í FH búningnum? Leikurinn sem tryggði okkur fyrsta Íslandsmeistaratitilinn sumarið 2004 og móttökurnar sem við fengum í Krikanum. Engin spurning
Nei, Daði er frábær drengur sem hefur gert mikið fyrir okkur FH-inga, góður samherji og vinur. Við óskum honum auðvitað alls hins besta og vonum að hann eigi eftir að standa sig vel, sem ég er viss um að hann mun gera. Hver er besti leikmaður sem leikið hefur í FH búningnum fyrr og síðar (fyrir utan þig sjálfan auðvitað)? Allan Borgvartd. Hver er þinn uppáhaldsleikmaður í heiminum? Björn Daníel Sverrisson. Hann er alveg óborganlegur.
Nei, ég er fyrst og fremst kúltíveraður séntilmaður. En ég þekki vel partíeðlið í mínu heimafólki og langar að koma til móts við það af gestrisni og höfðingsskap. Að lokum, hvað viltu segja við FH inga? Þeir verða að passa sig á að taka nóg lýsi í vetur og bæta svolitlu D-Vítamíni við, bæði leikmenn og ekki síst stuðningsmenn. Þá þarf ekki að kvíða næsta sumri. |