FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH 1 Grindavík 1

Tweets

Fótbolti.net

Viðtal við nýjan markmann Hauka
Árni Rúnar Karlsson    Fös, 30. október 2009   

Við settum okkur í samband við nýjan markmann Haukamanna og spurðum hann nokkra spurninga í léttari kantinum. Smellið á lesa meira til þess að sjá hvað Daði hafði að segja. 

 

Hvernig tilfinning er það að vera kominn í Hauka? 

Það er bara mikill spenningur í gangi en vissulega er þetta skrítin tilfinning, maður á eftir að eignast bara fleirri góða vini með svona vistaskiptum sem er tilhlökkunarefni, en vissulega á maður eftir að sakna strákana í FH liðinu mjög mikið og hvað þá ykkar stuðningsmannana.



Ertu ekki feginn að markmannsbúningur Hauka sé ekki rauður? 

Ég færi í rauða litinn hvenær sem er ! enda United maður að upplagi og hef alltaf kunnað vel við þann lit.



Heldurðu virkilega að þú eigir eftir að verja skot gegn FH næsta sumar?  

Maður þekkir sína gömlu félaga og eigum við ekki að segja að maður kortleggi ekki bara vel hvern leik á móti mínum gömlu félögum næsta sumar og taki bara allt sem fer á rammann ;-)



Hvað segja félagar þínir,Bjarni,Ófeigur og Ingvar um þetta mál?  

Þetta fór eðlilega misvel í mína vini, en maður sá það í miðri orrahríðinni hversu miklir vinir þetta eru í raun sem standa svona vel með manni í svona erfiðu máli...snökt snökt



Hvernig komu Haukar þér fyrir sjónir áður en það varð ljóst að þú gengir til liðs við þá?  

Var svo sem ekki búin að velta þeim neitt mikið fyrir mér áður en þeir höfðu samband við mig, en það reyndar er einn vinur minn sem ég gladdi mjög mikið með mínum skiptum sem lét mig vita reglulega af þeirra tilvist og getu.



Hver eru þín persónulegu markmið fyrir næsta sumar?  

Ég stefni alltaf á að toppa sjálfan mig og hjálpa mínu liði til að ná settum markmiðum.



Hvernig er viðskilnaður þinn við FH?  

Eigum við ekki að segja að þetta sé svona á mörkum þess að vera sáttur og ósáttur, en tíminn læknar þessi sár og minningarnar um alla góðu hlutina sem ég hef upplifað sem Fhingur læt ég ráða ferð í dag.

 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson