FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH Grindavík

Tweets

Fótbolti.net

Viðtal við formann
Árni Rúnar Karlsson    Lau, 24. október 2009   

Við höfðum samband við Jón Rúnar formann knd FH og spurðum hann út í nýjan samning við Actavis. Smellið á "lesa meira" til þess að sjá hvað Jón Rúnar hafði að segja um samninginn.

 Er ekki gríðarleg ánægja hjá ykkur að vera búnir að endurnýja samninginn við Actavis?
Jú vissulega er mikil ánægja með að hafa endurnýjað styrktarsamning okkar við Actavis.
    

Er þessi samningur betri eða samskonar og hefur verið undanfarin ár?
Þessi samningur er nokkuð betri en sá fyrri en það segir ekki alla söguna. Það er í raun  ómetanlegt fyrir okkur FH-inga að eiga að svo traustan og velviljaðað bandamann sem Actavis er, ekki síst á svona kreppu-tímum sem nú eru.

Var einhverntímann spurning um hvort að Actavis myndi vera áfram á búningum FH?
Það er nú ekki neitt sjálfgefið í henna veröld og því  ekki neitt sjálfsagt mál að Actavis væri áfram á búningum FH. Við höfum nú verið í samstarfi við Actavis í 10 ár og ekki spurnig að þetta hefur haft gríðarlega jákvæð áhrif á allt starf innan deildarinnar.

Kemur Actavis einnig að yngriflokka starfi FH?
Vissulega kemur samningur okkar við Actavis sér vel fyrir alla flokka KDFH þó svo að samningurinn snúist að mestu um m.fl. karla.

Ég vil nota tækifærið og þakka Actavis stuðninginn.

 

Kv Jónsi

 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson