FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH 1 Grindavík 1

Tweets

Fótbolti.net

Viðtal við Gumma Sævars
Árni Rúnar Karlsson    Mán, 19. október 2009   
Við höfðum samband við Gumma Sævars og tékkuðum stöðuna á besta hægri bakverði Íslands. Smellið á "lesa meira" til þess að sjá hvað Gummi hafði að segja.

 

Sæll Gummi,

Hvernig er staðan á þínum meiðslum?

Hún er ágæt, ég er allur að koma til og það er raunhæft að vera kominn á fullt strax eftir áramót. Svona álagsmeiðsl geta oft verið erfið og þessar bólgur sem ég hef verið að eiga við í hásinunum urðu því miður þrálátari en ég vonaðist eftir.

Var ekki hrikalega svekkjandi að missa af lokasprettinum í sumar?

Jú það var mjög svekkjandi og þetta var í rauninni ný reynsla fyrir mig að vera í pöllunum og fyrsta skipti sem ég missi svona úr vegna meiðsla. Það var hrikalega erfitt að sitja upp í stúku sérstaklega á tímabili þegar liðið hikstaði aðeins en síðan fundum við taktinn aftur í lokinn og kláruðum þetta sannfærandi.

Varstu sáttur við þína spilamennsku þangað til að þú meiddist síðasta sumar?

Já, við áttum gott "run" í fyrri umferðinni, stemningin í liðinu minnti mig á 2005, þá small liðið vel saman og ég fann mig mjög vel þ.a. ég var nokkuð sáttur við mína spilamennsku fram að meiðslum ... Síðan má ekki gleyma að ég var líka að gera fína hluti í stúkunni.

Nú hefur FH fengið 2 sterka leikmenn til liðs við sig, hvernig heldurðu að þeir eigi eftir að plumma sig?

Ég held að þeir eigi eftir að standa sig vel fyrir FH. Þetta eru góðir og reynslumiklir leikmenn sem eiga eftir að vera góð viðbót við okkar hóp.

Hvernig leggst sumarið 2010 í þig?

Sumarið leggst vel í mig og vonandi nær maður fleiri leikjum en síðasta sumar. Hópurinn er auðvitað mjög sterkur og engin ástæða til annars en að stefna hátt. Eftir vonbrigðin í Evrópukeppninni í sumar hljótum við að ætla að gera betur þar sem og í bikarnum og síðan getur maður ekki beðið eftir að fá Hauka í Krikann.

Hvað stefnir kallinn á mörg mörk 2010?

Það er nú best að segja sem minnst um það enda hefur maður nú ekkert verið að raða inn mörkunum undanfarin ár en ég stefni á að setja allavega eitt í deildarbikarnum og síðan verðum við að sjá til með sumarið.
 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson