FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH 1 Grindavík 1

Tweets

Fótbolti.net

Spurningar sem að brenna á mönnum
Árni Rúnar Karlsson    Mið, 14. október 2009   

Leituðum til Heimis Guðjóns og báðum um svör við spurningum sem brenna á mönnum. Smellið á "lesa meira" til þess að sjá hvað Heimir hafði að segja.

 

Nú hefur Gunnar Már skrifað undir samning við FH, hvað sérðu hann gera fyrir FH liðið?
Gunnar Már er að mínu mati mjög öflugur miðjumaður sem við bindum miklar vonir við. Hann hentar mjög vel inn í það leikkerfi sem FH spilar ( 4-3-3) og það verður væntanlega hægt að bjóða uppá fjölbreyttari sóknarleik með tilkomu hans.


Einnig hefur Gunnleifur komið frá HK, var það eitthvað sem þú lagðir mikla áherslu á?
Já, ég lagði mikla áherslu á það.


Daði Lárusson sem hefur verið einskonar Herra FH. Nú er hann horfinn á braut, góður og mikill FH-ingur farinn þar?
Já engin spurning, Daði hefur staðið sig frábærlega með FH.


Mega stuðningsmenn FH eiga von á fleiri leikmönnum t.d Árna Freyr í ÍR eða Bjarna Ólafi frá Val?
Það gæti verið að við myndum styrkja okkur um einn leikmann til viðbótar, en það kemur í ljós. En hins vegar erum við meðvitaðir um það að ungir og efnilegir leikmenn í FH eru reynslunni ríkari eftir síðasta sumar.


Verða fleiri brottfarir úr FH-liðinu fyrir næsta sumar?
Maður veit aldrei, einhverjir leikmenn gætu reynt fyrir sér í atvinnumennsku.  En það kemur allt í ljós síðar.

 

 Með FH kveðju, Heimir

 

 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson