FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH Grindavík

Tweets

Fótbolti.net

Daði Lárusson
Árni Rúnar Karlsson    Mán, 12. október 2009   

Við hér á FHingar.net höfðum samband við Daða og báðum hann um að segja okkur sína upplifun á þessari atburðarrás með markvarðaskiptin. Smellið á "lesa meira" til þess að sjá hvað Daði hafði að segja.

 

Aðdragandinn að þessu máli er einfaldlega sá, að ég var búin að sjá þetta í fréttunum eins og allir aðrir fyrir nokkrum vikum síðan að það væru viðræður í gangi,en heyrði svo í stjórnarmanni og markmannsþjálfara áður en staðfestingin kom. Og þá var mér tilgreint um ástæður þess að nýr markmaður væri á leiðinni í klúbbinn og þær ástæður ætla ég ekki að tjá mig um, en ég hreint út sagt get ekki skilið þessa ákvörðun.

Það er búið að hafa samband við mig frá liðum og það kemur allt til greina verð ég að viðurkenna austur vestur norður suður, en auðvitað hefði ég kosið það að fá að klára minn samning að minnsta kosti en það var ekkert annað í stöðunni fyrir mig þannig að farewell og goodbye varð niðurstaðan.

En til þeirra sem vilja minnast mín :-) þá vil ég bara segja að þetta hefur verið ótrúlegur tími sem við höfum upplifað saman og það er einmitt það sem mun lifa í minningunni en ekki þessi málalok.


Kveðja
Ykkar ótrúlega þakkláti markvörður með allt saman !!
Daði Lárusson

 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson