
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| Viðtal við Gunnleif Gunnleifsson | |
|
|
Við höfðum samband við Gunnleif Gunnleifsson og lögðum fyrir hann nokkrar spurningar. Smellið á "lesa meira" til þess að sjá hvað Gulli hafði að segja.
Hvernig leggst það í menn að vera komnir í Krikann? Ég er í skýjunum með að vera komin í besta lið landsins. Ég mun gefa allt sem ég á til þess að félagið haldi áfram að vaxa og vinna titla. Ég hef bara heyrt jákvæða hluti um FH og allt sem er í kringum klúbbinn og iða í skinninu eftir að byrja.
Ég skoðaði að sjálfsögðu alla möguleika sem voru í boði eins og eðlilegt er þessum tímamótum hjá mér, en ég er meira en yfir mig glaður að vera komin í FH. Ég og Gunni erum jafnaldrar og ólumst upp saman í gegnum yngri flokkana þannig að við þekkjumst vel. Hann er frábær markmaður og ég hlakka til að vinna með honum. Daði Lárusson á stóran stað í hjarta margra FHinga, verður ekkert erfitt að klæða sig í treyju NR1? Daði Lárusson hefur verið einn af bestu markmönnum landsins í mörg ár. Hann skilaði frábæru starfi fyrir FH og verður án efa í guðatölu stuðningsmanna liðsins um ókomna tíð. Ég ber mikla virðingu fyrir Daða og ég klæðist treyju nr.1 hjá FH með miklu stolti eftir að Daði er búinn að klæðast henni í öll þessi ár. Leitaðirðu ráða hjá Óla Jó í sambandi við FH? Óli og ég ræðum auðvitað málin eins eðlilegt er hjá landsliðsþjálfara og landsliðsmönnum og ég ber virðingu fyrir því sem að hann segir. |