FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH Grindavík

Tweets

Fótbolti.net

Meiðsli TG
Árni Rúnar Karlsson    Mið, 26. ágúst 2009   

Heyrðum aðeins í TG og hvernig staðan væri á honum. Smellið á "lesa meira" til þess að sjá hvað TG hafði að segja.

 

Sæll Tryggvi hvernig er staðan á þínum meiðslum?

Sæll. Ég er með rifinn lærvöðva að framan í vinstri fæti. Fékk þungt spark í Fylkisleiknum beint framan á lærið fyrir ca. 7 vikum síðan (Valur Fannar). Hef svo verið að þjösnast á þessu í öllum leikjunum þar á eftir. Í Fjölnisleiknum var ég orðinn slæmur í lok leiks og í æfingavikunni þar á eftir varð ég mjög slæmur. Þá fór ég í myndatöku og þá kom í ljós rifa í lærinu. Mér var skipað að hvíla mig í 3-4 vikur. 

Það þýðir að ég missi af leiknum gegn Þrótturum á mánudaginn. Svo kemur landsleikjhlé sem að hentar mjög vel og því stefni ég á að spila síðustu þrjá leikina gegn ÍBV, Val og Fylki.

 Leikurinn gegn Grindavík var sá fyrsti sem að ég missi úr vegna meiðsla síðan ég kom í FH 2005 og var hræðilegt að sitja upp í stúku og horfa á. Því ætla ég mér að ná leiknum gegn ÍBV þann 13. september, alveg sama hvað tautar og raular. TG 
 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson