
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| Viðtal við Heimi Guðjónsson | |
|
|
Fhingar.net hafði samband við Heimi Guðjónsson og spurði hann út í nýjan samning og fleira. Smellið á "lesa meira" til þess að sjá hvað kóngurinn hafði að segja. Sæll Heimir,
Til hamingju með nýja samninginn, eru menn ekki sáttir við þetta? Jú eins og ég hef alltaf sagt, þá hefur mér liðið gríðarlega vel í FH og mjög ánægjulegt fyrir mig að þeir sem stjórna klúbbnum séu ánægðir með mín störf og vilji hafa mig áfram. Vonandi eru hinir frábæru stuðningsmenn FH ánægðir líka. Stuðningur þeirra er ómetanlegur fyrir þá sem koma að liðinu. Ertu ekki bara nokkuð sáttur við þína byrjun sem þjálfari? Jú auðvitað var frábært að vinna titilinn á mínu fyrsta ári sem þjálfari. En ég geri mér grein fyrir því að ég á margt eftir ólært og auðvitað eiga leikmennirnir stóran þátt í því að FH liðinu gengur vel. Að ógleymdu frábæru teymi sem kemur að liðinu með mér. Það hefur væntanlega gert gæfumuninn fyrir þig að fá að þjálfa Mafíuna um árið gegn FH í Risanum? Já það voru mín fyrstu spor á þjálfaraferlinum, lærði ótrúlega margt á þessum eina leik og það skemmtilegasta var að þeir sem voru í liði Mafíunnar hlustuðu ekkert á mig hehehe. Hvernig sérðu framtíðina hjá þér og FH? Vonandi á jákvæðum nótum, en við áttum okkur á því að við þurfum að leggja hart að okkur ár eftir ár ef við ætlum að viðhalda velgengninni sem hefur verið hjá klúbbnum síðustu ár. Eru mikil meiðsli fyrir leikinn gegn Fjölni? Nei, ekkert sem við ráðum ekki við. Kveðja, Heimir Þökkum Heimr kærlega fyrir og allir á völlinn í dag. ÁFRAM FH
|