
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| Viðtal við Meistara TG | |
|
|
Heyrðum aðeins hljóðið í TG um leikinn við KR og fleira. Smellið á "meira" til þess að lesa hvað meistarinn hafði að segja. Jæja Tryggvi góður sigur gegn Stjörnunni um daginn, en svo kemur skelfilegur leikur gegn KR í kjölfarið. Hvað veldur?Þú ert nú full harðorður þegar þú segir skelfilegur leikur. Við megum ekki gleyma okkur í velgengninni. Leikurinn var hin besta skemmtun, færi á báða bóga og hefði getað farið hvernig sem er. Ég minni á að við áttum skalla í innanverða stöngina og tvö skot björguð á línu í stöðunni 2-2. Ef við hefðum skorað þar og unnið leikinn þá hefðu allir talað um frábæran leik og góðan sigur. Þriðja mark KR er skot frá Gunna sem stefndi út af en fór í Hjört Loga og inn, smá heppnisstimpill yfir því. Það er stutt á milli í þessu. Það virtist þó vera aðeins meira hungur í KR- ingum og það get ég ekki útskýrt. Hafði þetta mikla forskot sem FH hafði einhver áhrif á menn? Ég veit ekki hvort að menn hafi verið komnir í eitthvað „comfort zone“ og haldið að þetta myndi bara klárast átómatískt. Það kann aldrei góðri lukku að stýra. En við erum staðráðnir í að klára mótið með stæl. Leikur gegn Fjölni næst í grafarvogi, hvernig leggst það í menn? Fjölnismenn eru auðvitað komnir í erfiða stöðu og eru að berjast fyrir lífi sínu í deildinni. Það er alltaf erfitt að mæta svoleiðis liðum. Þeir eru líka með flotta knattspyrnumenn í sínum röðum og býst ég því við hörkuleik. En við ætlum okkur sigur, að sjálfsögðu. Hvað stefnir TG á mörg mörk það sem eftir er sumars? Nú verður kallinn að fara að hætta að telja þessi mörk enda orðinn varnartengiliður J. En það væri auðvitað gaman að fara upp í 10 skepnur! Kv Rauða Ljónið! :) Þökkum TG kærlega fyrir
|