|
FHingar.net settu sig í samband við Guðmund Árna Stefánsson sendiherra í Svíþjóð, sem var formaður knattspyrnudeildar FH frá haustinu 1999 til ársloka 2005. Hann var því í forystu fyrir fótboltanum í FH, þegar "Risinn vaknaði" og FH varð stórveldi í íslenskri knattspyrnu. Við báðum hann um að rifja upp stöðu mála hjá FH um aldamótin síðustu, þegar hann tók við formennsku.
Ástandið var sumpart erfitt. Meistaraflokkurinn var í næstefstu deild, 1.deildinni og hafði mistekist að komast upp árin á undan þrátt fyrir heiðarlegar tilraunir. Það voru því litlir peningar til, áhorfendur sárafáir og menn orðnir dálítið þreyttir á baslinu. En yngri flokkar starfið var öflugt og mikil alúð lögð í það þá ekki síður en nú og við höfum svo sannarlega uppskorið í samræmi við þá sáningu. Fengið kröftuga leikmenn í tugatali inn í meistarflokkinn. Sumir þeirra í liði Íslandsmeistaranna, aðrir seldir erlendis eða til að styrkja önnur lið hérlendis. En þetta haust var Logi Ólafsson, FH ingurinn góðkunni, ráðinn sem þjálfari. Hann kom liðinu strax upp úr 1.deildinni á aldamótaárinu og við náðum síðan Intertoto sæti fyrsta árið í efstu deild, þ.e. 2001. Þá var Logi kallaður til starfa sem landsliðsþjálfari og Sigurður Jónsson tók við. Við stóðum okkur vel í Evrópukeppninni árið 2002, en síður í Íslandsmótinu; vorum um miðja deild. Árið eftir hafði Óli Jó tekið við liðinu og skilaði okkur í 2.sætið 2003. Og síðan gerðist ævintýrið sem allir höfðu beðið eftir áratugum saman: Við urðum Íslandsmeistarar árið 2004. Og síðan þá höfum við ekki horft um öxl, heldur haft algjöra yfirburði í íslenskri knattspyrnu og unnið allt sem hægt er að vinna, næstum því alltaf." Hvað gerði það að verkum að þetta fór að ganga svona vel? "Það er auðvitað ekkert eitt sem gerði það að verkum að "Risinn vaknaði". FH ingar höfðu lengi haft prýðilegan efnivið, en alltaf vantað herslumuninn. Það þurfti því að koma inn og festa í sessi sigurhefðina í FH, þannig að leikmenn, stjórnarmenn og stuðningsmenn væru samstiga í því, að FH ætti að vinna alla leiki og tap væri ekki til í orðabókinni. Ég þekkti vel þessa sigurhefð frá því ég spilaði í handboltanum með FH ingum í gamla daga. Þá var hreinlega gengið út frá því að alla leiki ætti að vinna. Allt annað var ómögulegt. Og um leið fóru önnur lið að hræðast það að mæta FH. Yfir þennan þröskuld komumst við í fótboltanum með eftirminnilega sigrinum 2004. Auðvitað var þetta oft erfitt, en það var öflugur hópur í stjórninni, menn á borð við Þóri heitinn Jónsson, sem væri hægt að skrifa heila bók um, svo öflugur var hann. Jón Rúnar Halldórsson, núverandi formaður og mikill kraftakarl, kom líka fljótlega inn. Og Pétur Stepensen framkvæmdastjóri deildarinnar síðustu sex árin og stjórnamaður í knattspyrnudeildinni í um 30 ár, var og er ótrúlega útsjónarsamur og drjúgur. Hann er svo sannarlega límið í þessu, tengiliður fortíðar við framtíð og enn á fullu og gefur ekki eftir. Fleiri góðir menn og konur komu auðvitað að verki,menn eins og Kristinn Jóhanneson (Kidda frænda!) og Lúðvík (Lúlli)Arnars og Gísli Björgvins, en það sem var svo skemmtilegt við þetta, var að þessi hópur manna voru einnig vinir og félagar utan stjórnarstarfa. Vorum samstiga um flest, þótt einnig hefði verið rifist og skammast á milli. En það gleymist um leið og lausnir fundust. Það er staðreynd að ekkert félag myndi ganga, ef ekki værir fyrir gríðarlega vinnu sem stjórnarmenn leggja að mörkum til að hlutir gangi upp, fjárhagslega og félagslega. Og allt er þetta í sjálfboðavinnu. Gleymum því ekki. Og ekki má gleyma stuðningsmönnum, sem fylgja liði sínu í blíðu og stríðu. Þótt fáir áhorfendur hefðu lagt leið sína í Krikann áður en fyrsti Íslandsmeistaratitillinn kom í hús, þá var samt alltaf harður traustur kjarni sem aldrei gafst upp. Og nú eru stuðningsmenn FH, Mafían og aðir hreinlega 12. maðurinn í liði Íslandsmeistaranna. Leikmennirnir verða að sjálfsögðu að skila sínu og geta eitthvað í fótboltan. En það skiptir líka máli að hópurinn sé rétt samansettur og samstiga. Og lúti vel stjórn kröftugs þjálfara. Þegar þetta allt gengur upp, þá skilar það árangri. Þetta allt hefur spilað vel saman hjá FH síðustu árin og verkin sýna merkin."
Hvernig sérðu framtíðina? "Það er engin ástæða til annars, en bjartsýni. Kaplakrikinn orðinn stórglæsilegur og er flottasti leikvangur á landinu. Kröftug stjórn yfir knattspyrnudeildinni og í öðrum deildum FH undir yfirvegaðri stjórn aðalstjórnar með Vidda Halldórs í broddi fylkingar. Auðvitað dreymir mann um það að FH nái að merkja betur í Evrópufótboltanum og klári það að vinna tvöfalt, þ.e. Íslandsmót og bikar á sama árinu. Það hefst ekki í ár, en við gerum það bara á næsta ári. Ég fylgist vel með boltanum í Svíþjóð, í Allsvenskan. Sérstaklega var ég duglegur við að mæta á heimaleiki Djurgarden, þegar gamli FH þjálfarinn, Siggi Jóns, þjálfaði þá. Ég er handviss um það að FH liðið í dag myndi gera sig gildandi í hinni sterku Allsvenskan deild í Svíþjóð. Ég skynja það og finn hjá leikmönnum, stjórnarmönnum og stuðningsmönnnum FH að þeir eru langt í frá saddir. Þeir vilja meira og halda áfram. Það eru alltaf nýir tindar sem þarf að klífa. Kvennafótboltinn er að koma upp aftur. Yngri flokka starfið á toppi og meistaraflokkurinn klárar mótið með stæl síðsumars. Í haust pústa svo menn, en strax næsta vor eru það ný markmið og stærri. Áfram FH." Við þökkum Guðmundi Árna spjallið. Hann er á Íslandi í sumarfríi þessa dagana og mætir auðvitað á FH leikina sem framundan eru. Hann sagði okkur að lokum, að hann gældi við þá hugsun að FH kláraði mótið í næstu þremur leikjum, fengi 9 stig úr þeim, þannig að hann gæti enn og aftur upplifað sigurtilfinninguna á vettvangi. Við sjáum hvað setur. |