|
Stutt spjall við Heimi Guðjóns
|
|
Árni Rúnar Karlsson
Fim, 06. ágúst 2009 |
|
|
Heyrðum aðeins hljóðið í Heimi Guðjóns fyrir leikinn í kvöld og spurðum hann út í liðið. Smellið á meira til þess að lesa hvað Heimir hafði að segja.
Sæll Meistari, Núna er leikur við Stjörnuna í dag, er eitthvað sem FH þarf sérstaklega að varast í þeirra leik? Stjarnan er með vel skipulagt lið og fljóta framherja sem þarf að varast. Hefur FH æft eitthvað sérstaklega á gervigrasi fyrir þennan leik? Nei. Hvað finnst þér um gervigrasvelli í efstu deild? Það er partur af fótboltanum að spila á gervigrasi og þá mætum við á völlinn og spilum. Hvað er að frétta af Gumma Sævars? Hægur bati en vonandi verður hann klár eftir 3 vikur. Er Hjörtur Logi tilbúinn? Já hann er búinn að æfa með okkur í viku þannig að hann er klár í leikinn á morgun. Atli Viðar var valinn í landsliðið á dögunum, er þetta ekki bara það sem hann á skilið? Jú ekki spurning. En hann hefur reyndar ekki sýnt það á æfingum eftir að hann var valinn hehe Nú yfirgaf Matthías Guðmunsson FH á dögunum og Ólafur Páll kom aftur til FH. Hver var ástæðan fyrir þessum skiptum og ert þú sáttur við þessi skipti? Þetta voru einfaldlega skipti á leikmönnum, Valur vildi Matta og og við vildum fá Óla Palla. Já ég tel Óla Palla henta okkar leikstíl vel og bind miklar vonir við hann. Þökkum Heimi kærlega fyrir Áfram FH |