
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| Óli Palli "Er í skýjunum núna" | |
|
|
Smellið á lesa meira til að lesa viðtalið. Velkomin aftur í FH Óli, þú bjóst líklega ekki við því þegar þú fórst frá FH í ársbyrjun 2008 að þú myndir koma svo fljótt aftur var það? Nei, það er alveg rétt ég bjóst ekki við því að koma aftur svona fljótt. En ég þakka öllum FH-ingum það traust sem mér er sýnt með því að vilja mig aftur í Krikann. Eftir að Heimir hringdi í mig þá var það aldrei spurning um það hvaða stefnu ég tæki. Nú voru mörg lið á eftir þér síðustu daga, hvenar kom upp sú staða að þú gætir snúið aftur í FH? Það eru 1-2 dagar síðan FH kom inn í myndina og ég var fljótur að grípa tækifærið að spila með besta og skemmtilegasta liðinu á landinu aftur. Já það er rétt. Ég var með tvöfalt kviðslit og hafði verið síðan veturinn 2005-2006. Ég fór í aðgerð í febrúar 2006 sem hélt mér frá æfingum í 3 mánuði svo þegar ég byrjaði að æfa aftur kom það í ljós að aðgerðin gekk ekki. Svo fer ég ekki aftur í aðgerð fyrr en febrúar 2007 og næ mér af meiðslunum í byrjun sumars. Þá fer ég með Atla Viðari og Heimi Guðmunds í Fjölni og ég spila þar 6-7 leiki kem aftur í fh og er lítið notaður eftir það. Það var kannski eðlileg þróun á málum þar sem liðið var að spila vel. En Óli Jó vildi fá mig tilbaka í hópinn og auðvitað gerir maður það sem þjálfarinn setur upp fyrir mann. Nei það geri ég ekki. Samkeppnin var gríðarleg árið 2005 og þá stóð ég mig sem allra best því vona ég að samkeppnin geri mig enn sterkari og betri leikmann. Ég geri mér samt sem áður fulla grein fyrir því að ég er að koma inn í hóp þar sem bestu leikmenn deildarinnar eru, en þar á ég heima. Já, þú getur rétt ímyndað þér það, enda er ég í skýjunum núna. Ég verð með í hópnum í kvöld og get ekki beðið. Auðvitað er mikilvægt að landa sigri í Keflavík, hins vegar er alls ekkert hlaupið að því þannig að við þurfum að vera klárir. En við ætlum okkur alla leið í þessari keppni þannig að það er vel tímabært og í dag er frábært tækifæri á að gera góða hluti í Keflavík. |