FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH 1 Grindavík 1

Tweets

Fótbolti.net

Viðtal við Tryggva Guðmundsson
Jónas Ýmir Jónasson    Mið, 29. júlí 2009   

Við höfðum samband við Tryggva Guð(mundsson) í tilefni þess að hann hefur skorað 50 deildarmörk fyrir FH.   Tryggvi hefur hinsvegar skorað samtals 65 mörk fyrir FH í deild, bikar, meistarabikar og Evrópukeppni.  Samtals hefur Tryggvi skorað 106 deildarmörk fyrir þrjú lið en aðeins Ingi Björn Albertsson hefur skorað fleiri deildarmörk.  Það ber einnig að hafa það í huga að Tryggvi hefur skorað þessi mörk á mun skemmri tíma en Ingi Björn en Tryggvi var í sjö ár í atvinnumennsku.

Tryggvi það eru aðeins 4 ár síðan að þú komst til FH, 50 mörk með
félaginu, er eitthvað eitt mark sem stendur upp úr?

Fyrsta markið mitt fyrir FH er minnistætt. Þá sigruðum við Keflavík í Keflavík 3-0 sumarið 2005. Ég fékk langa sendingu frá Audda Hegg og þóttist ætla að gefa fyrir með vinstri, tékkaði og setti hann í fjær með hægri. Eins var markið í leiknum á eftir á móti Grindavík gott, þar sem að ég "chippaði" yfir markvörðinn í fjær hornið og aftur var það með hægri!

Þú varst aðeins 31 árs þegar þú komst heim á ný, var alltaf planið að
enda ferilinn heima í stað þess að klára hann úti.?

Nei það var ekkert endilega planið. Mér stóð til boða að halda áfram úti en ákvað bara að koma heim. Stabæk sem vildi fá mig aftur voru nefnilega fallnir úr efstu deild og mér fannst það ekki spennandi þá. Nokkrum árum seinna urðu þeir þó meistarar í Noregi!! Önnur ástæða vara sú að elsti strákurinn minn var að fara að byrja í skóla og ég vildi endilega að hann myndi hefja skólagöngu sína á Íslandi.
En það voru sem sagt nokkrar ástæður fyrir því að ég kom heim sem erfitt er að fara nánar í án þess að skila inn ritgerð :-)

Af hverju valdirðu FH á sínum tíma?

FH sýndu mér einfaldlega lang mesta áhugann og það voru að mínu mati mjög spennandi tímar framundan hjá Fimleikafélaginu.
 
Nú ertu næstmarkahæstur frá upphafi hér á landi(106 mörk), ég las það
einhverstaðar að þú ert einn markahæsti erlendi leikmaðurinn sem
spilað hefur í Noregi fyrr og síðar, er eitthvað til í því?

Metið í Noregi var reyndar slegið núna fyrir nokkrum vikum af Daniel Nannskog (Svíi í Stabæk). En ég átti þetta met sem sagt í 5-6 ár þar til fyrir stuttu.

Nú áttu aðeins um 20 mörk í að slá markamet Inga Björns og töluvert eftir
að þessu tímabili, þú hættir varla knattspyrnuiðkun fyrr en þú slærð
þetta met?

Ég hef nú sagt að ég ætla að halda áfram á meðan ég hef gaman af þessu og auðvitað á meðan ég get eitthvað. Ég hef ennþá mjög gaman af þessu og tel mig ennþá nokkuð góðan :-). Ekki mikið að spá í þessu meti enda heil 20 mörk í þetta.

Að lokum, stórleikur gegn Keflavík í bikarnum, möguleikinn á
tvennunni eða fernunni öllu heldur er enn við hendi.  Það eitt ætti að
vera nægileg hvatning fyrir leikinn á morgun ekki satt?

Það er rétt. Önnur hvatning er líka sú að við töpuðum þarna í fyrstu umferðinni í ár og duttum út fyrir þeim í bikarnum í fyrra á sama velli þannig að það er löngu kominn tími á góð úrslit í Keflavíkinni!

Annars er ég bara drullugóður og snældunettur.

Við þökkum Tryggva Guð(mundssyni) kærlega fyrir.

 

 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson