|
Viðtal við Atla Viðar
|
|
Árni Rúnar Karlsson
Mán, 20. júlí 2009 |
|
|
Við heyrðum aðeins í Atla Viðari og fengum hann til þess að svara nokkrum spurningum okkar og eins og með alla leikmenn sem við höfum haft samband við þá var það nú ekki mikið mál fyrir meistara Atla Viðar. Smellið á lesa meira til þessa að athuga hvað hann hafði að segja.
Hvernig fannst þér leikurinn á móti Keflavík frá FH-ingi séð? Mér fannst leikurinn að mörgu leyti mjög góður hjá FH. Strákarnir voru mjög ákveðnir í að láta skellinn á móti Aktobe ekki slá sig neitt út af laginu og komu grimmir og ákveðnir til leiks. Blússandi sóknarbolti í fyrri hálfleik og algjör synd að hafa ekki náð að koma inn marki á þá þegar við höfðum öll völd á vellinum. Seinni hálfleikur var síðan bara stórsókn FH inga og alveg sorglegt að hafa ekki náð að vinna þennan leik því við fengum svo sannarlega færin til þess og mér fannst Keflavíkurliðið ekki eiga sinn besta dag. Hvernig meturðu sénsinn á góðum úrslitum út í Kazakhstan? Ég held að menn séu meðvitaðir um það að þó möguleikinn á að fara áfram sé kannski ekki mikill þá er alltaf möguleiki á góðum úrslitum í þessum leik. FH hefur oft náð góðum úrslitum á útivelli í Evrópukeppni og ég held að það sé ágætis möguleiki á að það gerist líka núna. Það er mikilvægt að ná góðum úrslitum, sérstaklega á útivelli upp á styrkleikalista fyrir næsta ár í Evrópukeppni, bæði fyrir FH og öll hin íslensku liðin. Eigum við ekki að segja að við gerum jafntefli í Kazakstan, 0-0. Er leiðinlegt að missa af leiknum í Kazakhstan? Það er draumur hvers fótboltamanns á Íslandi að fá að taka þátt í Evrópukeppninni og fá að spila á stærri völlum en við spilum á hérna heima fyrir fleiri áhorfendur þannig að það eru vissulega vonbrigði að missa af þessum leik. Mafían var að færa sig yfir á leiknum á móti Keflavík, hvernig fannst þér það koma út? Ég held að það komi mjög vel út. Ég var náttúrulega ekki niðri á vellinum á laugardaginn og heyrði þ.a.l. ekki nógu vel í ykkur en ég er þeirrar skoðunar að allir FH-ingar eigi að sameinast í þessa stúku og búa til alvöru FH stemmningu! Hvernig finnst þér nýja lookið á fhingar.net? Mér finnst síðan hrikalega flott, þið eigið allir heiður skilinn! Þökkum Atla kærlega fyrir |