
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| Viðtal við Heimi Guðjóns | |
|
|
Við heyrðum í Heimi Guðjóns og spurðum hann út í leikinn við Keflavík, ásamt fleiru. Smellið á meira til þess að sjá hvað kóngurinn hafði að segja. En hvernig leggst Keflavíkur leikurinn í þig og hverjir eru helstu styrkleikar þeirra að þínu mati? Leikurinn við Keflavík leggst vel í mig, við eigum harma að hefna, töpuðum fyrir þeim í fyrstu umferðinni. Styrkleikar Keflavíkurliðsins eru þeir að þeir eru með fljóta framherja og vel spilandi fótboltalið Nú er Guðmundur Steinarsson á leið heim eftir stutta dvöl hjá Vaduz, heldurðu að það skipti miklu máli fyrir Keflavíkurliðið? Já engin spurning, Guðmundur var einn besti leikmaður Íslandsmótsins í fyrra og kemur til með að styrkja Keflavíkurliðið mikið Nú eru menn að tala um í Pepsi mörkunum á Stöð2sport að FH sé búið að „eyðileggja“ mótið og menn gengið svo langt að óska sér að FH tapi. Finnst þér þetta fagmannleg umræða? Nei, það finnst mér ekki fagmannlegt en við getum ekki stjórnað fjölmiðlaumfjöllun um FH. Ég hef alltaf metið það þannig að það sé farsælast að leiða þessa umfjöllun hjá sér og einbeita sér að næsta leik Það hafa verið sögusagnir um að Matthías Guðmundsson og Tryggvi Guðmundsson séu á leið frá FH núna í glugganum. Er eitthvað til í þessu? Nei Hvernig er staðan á Gumma Sævars? Gummi Sævars verður væntanlega klár í næsta leik Hvernig er staðan á Dennis? Dennis ætti að geta byrjað að æfa í næstu viku Munum við sjá einhverjar breytingar á liðinu fyrir Keflavíkurleikinn? Aldrei að vita Þökkum Heimi kærlega fyrir þetta viðtal. Áfram FH |