
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| Viðtal við formann knattspyrnudeildar | |
|
|
Við á this.is/fh lögðum heilmikinn spurningalista fyrir formann knattspyrnudeildar FH, Guðmund Árna Stefánsson á dögunum. Hann er eins og menn vita upptekinn maður í kosningabaráttu en gaf sér tíma til að svara nokkrum spurningum og við kunnum honum bestu þakkir fyrir það. Hér kemur fyrsti skammtur sem snýr að fjármálum knattspyrnudeildarinnar.
Hvernig er fjárhagsstaða knattspyrnudeildar? Rekstur knattspyrnudeildar byggist að langmestu leyti á sjálboðaliðsstarfi. Þar er þó launaður framkvæmdastjóri. Stjórn knattspyrnudeildar, og stjórnir unglingaráðs, kvennaráðs og rekstarstjórnar meistarflokks og 2.flokks sjá um tekjuöflun ásamt framkvæmdastjóra og öðrum áhugasömum og byggist hún á söfnun auglýsinga á auglýsingaskilti, í blöð og með því að fá styrktaraðila til liðs. Skuldir deildarinnar eru of háar. Þær þarf að lækka. Hins vegar eru mörg félög í efstu deild með erfiðari skuldastöðu en þetta, enda hefur verið reynt að halda útgjöldum í láginni og leikmannakaupum í hófi. Fær knattspyrnudeild einhverja fjármuni vegna sölu ungra leikmanna? Spurt er sérstaklega um tekjur vegna sölu okkur ungu og góðu leikmanna til Noregs, þeirra Davíðs Viðarssonar, Hannesar Þ. Sigurðssonar og Sverris Garðarssonar. Þessir sölusamningar við hin norsku lið eru árangurstengdir, þannig að FH fær greitt ákveðna upphæð, eftir ákveðinn leikjafjölda sem þessir leikmenn ná að spila með hinum erlendu liðum. Upphafsfjárhæð er tiltölulega lág, en ef leikmenn festa sig í sessi í liðum sínum erlendis, þá fær uppeldisliðið, FH, sæmilegar greiðslur. Ef allt gengur upp er verið að ræða um nokkrar milljónir á hvern leikmann. Þá er einnig spurt um það hvort uppeldisfélagið fái einhverjar greiðslur fyrir leimennina verði þeir seldir áfram til þriðja leiðs. Svarið er já. 10% er algengt viðmið í þeim efnum. Hvað með greiðslur fyrir leikmenn eins og Hilmar Björnsson og Jóhann Möller sem farið hafa frá félaginu? Varðandi Hilmar Björnsson sem fór til KR síðasta haust, þá var samningur hans útrunninn, þannig að engar greiðslur fóru á milli félaganna. Í tilfelli Jóhanns Möller, þá greiddi Valur til FH samkvæmt hefðubundnum greiðslum skv. viðmiði KSÍ. Greiðslan var í kringum 250 þúsund. Þegar um það er spurt hvort sala okkar ungu leikmanna til útlanda skipti miklu máli varðandi fjárhagsmál deildarinnar, þá er unnt að svara því neitandi. Amk. ekki ef þeir eru seldir til annarra Norðurlanda. Öðru máli gæti gegnt ef salan væri til Þýskalands eða Bretlands. Hins vegar vill félagið ekki standa í vegi fyrir metnaðargjörnum ungum leikmönnum ef þeir vilja bæta sig sem leikmenn og komast á hinn stóra markað í Evrópu. Gott samkomulag hefur tekist á milli þessara ungu leikmanna sem frá okkur hafa farið ytra og forráðamönnum þeirra varðandi þessi mál. Þar er reynt að gæta sanngirni. Félagið fær sinn eðlilega hlut, leikmaðurinn sjálfur einnig og fyrir honum opnast nýjar dyr í knattspyrnuheiminum. Við lítum hins vegar alltaf á þessa stráka, sem "okkar stráka" - FH-inga í húð og hár. Og þeir koma einhvern tíma heim aftur í Krikann. Það stefndi til dæmis í það á tímabili í vetur að Auðunn okkar Helgason kæmi heim og léki með okkur í sumar. Af því varð þó ekki, því sænskt lið keypti hann til sín. Og við stóru liðin í Evrópu getur FH ekki keppt við á fjármálamarkaðnum - ekki ennþá amk. Á leikvellinum getum við att kappi við alla og strítt stórliðum þegar sá gállinn er á okkur. Jafntefli hér heima síðasta sumar við Villareal frá Spáni er talandi dæmi um það. Stendur til að hækka aðgangseyri á leiki í Kaplakrika? Ekki hefur verið tekinn ákvörðun um upphæð aðgangseyris á næsta ári.Við munum reyna hér eftir sem hingað til að stilla honum í hóf, þannig að sem flestir eigi þess kost að koma og styðja okkar menn. Mikilvægt er að það fjölgi áhorfendum í Krikanum næsta sumar. En allt helst þetta í hendur. Ef liðið stendur sig í upphafi móts þá mæta bæjarbúar - ef illa gengur, þá fækkar þeim. Þetta er lögmál sem við verðum að búa við. Eigum við ekki að segja fyrri valkosturinn verði uppi við á næsta vori. Þetta verði gott sumar með miklum skara áhorfenda!! Það er nefnilega þannig, að þrátt fyrir slakt gengi liðsins í vetur, í deildarbikarkeppni og æfingaleikjum, þá er það að mínu mati eingöngu spurning um það hvenær liðið smellur saman, en ekki hvort. FH gæti orðið liðið sem kæmi á óvart í efstu deildinni í sumar. Það er mín spá. FH- kveðjur, Guðmundur Árni formaður knattspyrnudeildar. |