
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| Viðtal við formann knattspyrnudeildar #2 | |
|
|
Við sendum formanni knattspyrnudeildar, Guðmundi Árna, enn og aftur spurningu á dögunum. Að þessu sinni var spurt um framtíðarsýn stjórnarinnar - nánar tiltekið hvar verður FH eftir 10 ár? Kíktu á svarið og sjáðu hvað Liverpool hefur með FH að gera árið 2013.
Hver er framtíðarsýn stjórnarinnar (næstu 10 árin)? Þegar stórt er spurt, þá verður oft fátt um svör. Það liggur hins vegar ljóst fyrir að stjórn knattspyrnudeildarinnar leggur allt kapp á að FH verði meðal þeirra allra bestu í íslenskri knattspyrnu. Félagið hefur alla burði til þess og hefur oft blandað sér í baráttu þeirra bestu á toppi deildar ellegar í bikar, en því miður hefur herslumuninn gjarnan vantað. Við höfum öll efni til þess að ná í titil - Íslandsmeistaratitil eða bikameistaratitil - á þessu eða næsta ári. Við höfum mannskapinn, við höfum umgjörðina og við höfum metnaðinn. Sigursælt meistaraflokkslið hefur ómæld áhrif á þátttöku þeirra yngri, sem og virkni í félaginu almennt. Hins vegar er það einu sinni svo í íþróttum að hefðin er rík og félög sem hafa sterka sögulega hefð fyrir titlum og toppárangri halda því gjarnan áfram - "mórallinn" innan félagsins krefst þess og leikmenn alast upp við það frá unga aldri að það er gerð krafa um sigur í hverjum einasta leik og að titill verði sóttur í hverju móti. Þannig var þetta áratugum saman í handboltanum í FH og höfðu sumir á orði að stundum hefði það ekki skipt meginmáli hvort FH - ingar voru að stilla upp sterku eða veiku liði hverju sinni, því leikmennirnir hverju sinni vissu til hvers var ætlast að þeim - raunar krafist - nefnilega að sigra. SIGURHEFÐIN MIKILVÆG Ég sjálfur minnist þessa, þegar ég lék með meistaraflokki FH í handbolta á áttunda áratugnum. Á þeim áratug sóttu FH ingar nokkrar Íslands- og bikarmeistaratitla. Sérstaklega er mér minnistætt árið 1976 í þessu sambandi. Þá var FH ekki spáð sérstöku gengi í uphafi móts. Sumir sérfræðingar sögðu þá að eldri og reyndari leikmenn væru orðnir of gamlir og ungir leikmenn sem voru að festa sig í sessi væru of ungir. Það vantaði "miðjuna" í aldur liðsins. Þetta væri þreytt lið. En FH-seiglan var til staðar og hinir ungu og "gömlu" smullu saman, "toppuðu" á réttum tíma og unnu alla titla sem voru í boði þetta árið, þar á meðal Íslandsmótið og bikarkeppnina. Var raunar fyrsta liðið til að vinna hvorutveggja sama árið. Þetta rifja ég upp til að leggja á það áherslu, að mikilvægt er að brjóta ísinn og ná í titil og byrja þannig að skrifa nýja sögu í fótboltanum hjá FH sem, þegar tímar líða fram, verður hefð og venja. Yngri flokkar félagsins hafa margir hverjir unnið góða sigra í gegnum tíðina, þannig að meðal yngri kynslóðarinnar eru leikmenn sem þekkja það vel að sigra og vilja ógjarnan tapa leik. Auðvitað kemur það fyrir öll góð lið að tapa leik og leik, en mikilvægast er að það er eitthvað sem endurtekur sig ekki. LIVERPOOL Í KRIKANN Að þessu sögðu er ég þess fullviss að á næstu fimm árum mun FH hafa unnið titla í meistaraflokki karla í knattspyrnunni og kvennaflokkur félagsins fest sig í sessi meðal fjögurra bestu liða á landinu. Og hvernig verður svo umhorfs árið 2013, eftir 10 ár? Skoðum málið. Það er komið fram undir lok ársins 2013. Leiktímabilinu hér heima á Íslandi er lokið. Rík sigurhefð hefur fest rætur meðal félagsins og stefnan var sett á topinn í öllum flokkum hjá körlum og konum. Fyrirmynd hjá félaginu eru meistaraflokkur þess, sem tapaði ekki leik á leiktíðinni árið 2013, en gerði þrjú jafntefli. Sigraði Íslandsmótið með yfirburðum - hafði sjö stig á liðið í öðru sæti, sem voru Haukar, en Haukarnir fylgdu FH ingum eins og skugginn fram eftir miðju móti, en urðu þá að gefa eftir. FH sigraði síðan úrslitaleikinn í bikarkeppninni 4- 2 gegn Fjölni í Grafavogi sem kom á óvart á leiktíðinni, enda úr miklum mannskap að velja þar sem 40 þúsund manns búa orðið í Grafarvoginum. Auk þessa er FH liðið komið í þriðju umferð Evrópukeppninnar, eftir að hafa slegið út lið frá Luxemburg og Danmörku í fyrstu tveimur umferðunum. En í þriðju umferð er mótherjinn Liverpool og þess er vænst að uppselt verði í Krikanum og að um 10 þúsund manns mæti. Beðið er eftir úrslitum leikjanna með miklum áhuga, enda hefur íslenskt lið aldrei komist jafn langt í alþjóðkeppni og FH þetta árið. Liðið enda feiknasterk með fimm landsliðsmenn innanborðs. Yngri flokkar félagsins blómstra einnig sem aldrei fyrr. 2.flokkur, 4. flokkur og 5. flokkur karla skila Íslandsmeistaratiltlum og einnig 2.flokkur kvenna. TVÖ SVÆÐI FH-INGA Félagið hefur yfir tveimur vallarsvæðum að ráða: Gamla góða Krikanum, þar sem nú eru sæti allt í kringum leikvöllinn fyrir 10 þúsund manns. Á svæðinu eru auk fyrsta flokks frjálsíþróttaaðstöðu þám. með inniaðstöðu. Knattspyrnuhús, í hálfri stærð leikvallar, er á svæðinu, vestan megin við íþróttamiðstöðina. Knattspyrnuhúsið þykir orðið gamalt og lúið, enda notað mikið þau tíu ár sem liðin eru frá því það var tekið í notkun - haustið 2003. Margir telja þó að þessi inniaðstaða á Kaplakrikasvæðinu hafi lyft Grettistaki og stórbætt aðstöðu og orðið með öðru til að koma FH ingum í fremstu röð í fótboltanum. Vönduð félagsaðstaða er í Krikanum og svæðið iðandi af lífi og fjöri frá morgni langt fram á kvöld. En FH ingar hafa þegar hafið kröftuga uppbyggingu á nýju svæði uppi við Hvaleyrarvatn. Þar hafa þegar risið nokkrir knattspyrnuvellir með búningsherbergjum og félagsaðstöðu. Þá er á nýja FH svæðinu fjölnota íþróttahús; undir sama þaki en sundurstúkað, handboltavellir á parketi og fótboltavöllur í fullri stærð á gerfigrasi. 2500 áhorfendur geta fylgst með leikjum í þessu stórglæsilega húsi, enda er hefur leiktímabilið á Íslandi lengst til muna. Hefst um miðjan mars og lýkur í lok október. Vor- og haustleikir fara fram undir þaki, ef veður krefst þess, enda fyrsta flokks gras, sem þolir ströngustu kröfur Evrópusambandsins á knattspyrnuhúsi FH og margra annarra íslenskra félaga. Já, það er líf og fjör hjá FH - ingum í fótboltanum eftir 10 ár. Raunar er félagið á toppnum í öllum aðalíþróttagreinum sínum þetta árið. Íslandsmeistaratitill og bikarmeistartitill í handbolta og frjálsum á þessu sama ári. Sannkallað FH ár í íþróttunum. Íþróttabærinn Hafnarfjörður stendur svo sannarlega undir nafni. AÐ HORFA FRAM Á VIÐ Hér hef ég látið gamminn geisa og hugann fljúga. En það er nauðsynlegt að láta sig dreyma og vona. Það er allt hægt ef viljinn er nægur. Ég minnist þess ætíð, þegar ég fór á minn fyrsta aðalfund FH, þá þrettán eða fjórtán ára gamall, að Árni Ágústsson, okkar ágæti knattspyrnuforkólfur um langt árabil hér á árum áður, leyfði sér þá að horfa inn í framtíðina hjá FH. Þetta hefur sennilega verið á aðalfundi félagsins, sem haldinn var í Rafhahúsinu árið 1968 eða 1969. Ég man eftir því að margir brostu út í annað, þegar Árni var að gæjast inn í framtíðina. En margt hefur hins vegar gengið eftir af hans draumum og þrám. Þess vegna skulum við ágætu FH - ingar horfa til framtíðar og gerum kröfur til okkar sjálfra um að gera enn betur en gert hefur verið. Byggja á traustum grunni sem byggður hefur verið, en halda áfram ótrauðir kraftmikilli uppbyggingu. FYRIR UNGA FÓLKIÐ Stjórn knattspyrnudeildar vill fyrst og síðast gefa ungu fólki kost á því að iðka skemmtilega og uppbyggilega íþrótt, sem knattspyrnan er. Það er mikilvægt í íþróttum að ná árangri, eins og í lífinu sjálfu. Auðvitað geta aldrei allir orðið í fyrsta sæti eða fremstu röð. En allir þeir sem leggja sig fram, gefa allt sem þeir eiga í leikinn, eru góðir íþróttamenn og til fyrirmyndar. Stjórn knattspyrnudeildar hefur sett sér það markmið að fjölga iðkendum eins og kostur er, ná árangri inn á vellinum og efla stórlega félagsvitund og félagsstarf meðal félaga og stuðningsmanna. Gera FH að samhentu og sigursælu félagi, sem önnur félög líta til með óttablandinni virðingu þegar þeir mæta til leiks gegn FH - ingum. En stjórnin gerir ekkert einsömul. Öll stórvirki í félagi eins og FH hafa verið og verða unnin þegar menn standa þétt saman og ráðast sameiginlega í verkefnin af stórhug og djörfung. Margar hendur vinna nefnilega létt verk. Með FH - kveðjum, Guðmundur Árni formaður knattspyrnudeildar. |