
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| Viðtal við Allan Borgvardt | |
|
|
Aftur höfum við fengið leyfi hjá þeim á fotbolti.net að birta viðtöl þeirra við FH-inga. Nú er það Allan Borgvardt sem sýnir á sér hina hliðina en Tommy Nielsen mun einnig gera það á næstunni. 1. Fullt nafn: Allan Borgvardt 2. Gælunafn: Ali 3. Aldur: 23 4. Giftur/sambúð?: Kærasta 5. Börn: Nei 6. Hvað eldaðir þú síðast?: Lasagne….ég bý til stórkostlegt lasagne. 7. Hvernig gemsa áttu?: Nokia 6510 8. Uppáhaldssjónvarpsefni?: Casper og Mandrilaftalen 9. Besta bíómyndin?: Pulp Fiction eða Trainspotting….erfitt að velja á milli 10. Hvaða tónlist hlustar þú á?: Doors, Strokes, Beck, Blur, Coldplay, Radiohead, Oasis og margt annað…. 11. Uppáhaldsútvarpsstöð?: X-ið og radio Reykjavik, þess háttar tónlist er ekki mikið spiluð í dönsku útvarpi. 12. Uppáhaldsdrykkur?: En kold øl… 13. Ertu hjátrúarfullur fyrir leiki (ef já, hvernig þá?) Nei… 14. Hvernig er best að pirra andstæðinginn?: Að spila betur en hann. 15. Hvert var átrúnaðargoð þitt á yngri árum?: Romario 16. Erfiðasti andstæðingur?: KR verða erfiðir í undanúrslitum bikarsins. 17. Besti samherjinn: Þeir eru margir góðir. 18. Sætasti sigurinn?: Sá síðasti. 19. Mestu vonbrigði?: Að hafa ekki leikið með U-21 landsliði Danmerkur. 20. Uppáhalds lið í enska boltanum: Man City. 21. Uppáhaldsknattspyrnumaður?: Anelka 22. Besti íslenski knattspyrnumaðurinn fyrr og síðar?: Sigurvinsson og Eiður Guðjohnsen 23. Efnilegasti knattspyrnumaður landsins?: Sverrir Garðarsson 24. Fallegasta knattspyrnukonan? Það eru nokkrar í KR. 25. Grófasti leikmaður deildarinnar?: Það eru nokkrir… 26. Hver er mesti höstlerinn í liðinu?: Það hlýtur að vera Daði. Það ganga ýmsar sögur um hann. 27. Hefurðu skorað sjálfsmark: Já og það var raunar mjög flott 28. Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Ég hef spilað leik sem þurfti að gera hlé á vegna þess að áhorfandi henti gerfityppi á völlinn. 30. Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaflokki? Mars ´99 31. Eru FH-ingar byrjaðir að ræða við þig um nýjan samning fyrir næsta sumar? Nei
33. Myndirðu íhuga að fá þér íslenskan ríkisborgararétt til að verða gjaldgengur í íslenska landsliðið? Nei 34. Hvernig finnst þér íslenska deildin? Þetta er góð deild og ég ber mikla virðingu fyrir íslenskum fótbolta. 36. Hvað ertu menntaður? Ekkert 37. Kemst íslenska landsliðið á EM 2004? Ég vona það en það verður óneitanlega erfitt gegn Þjóðverjum. |