
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| Viðtal við Tommy Nielsen | |
|
|
Aftur höfum við fengið leyfi hjá þeim á fotbolti.net að birta viðtöl þeirra. Nú er það Tommy Nielsen sem sýnir á sér hina hliðina
Fullt nafn: Tommy F. Nielsen Gælunafn: Ekkert hér í FH Aldur: Aðeins 31 árs Giftur/sambúð: Single Börn: Nei Hvað eldaðir þú síðast?: Ég steikti tvö lambafille, skar niður kartöflur í skífur og setti í rjóma og ost sem og svolítið grænmeti sem síðan var hitað í ofni. Hvernig gemsa áttu?: Nokia 3410 Uppáhaldssjónvarpsefni?: Horfi ótrúlega lítið á sjónvarp hér á Íslandi og á mér ekki neitt uppáhaldssjónvarpsefni. Í Danmörku fannst mér skemmtilegast að horfa á spurningaþætti, heimildamyndir og nokkrar þáttaraðir (Vini og Everybody loves Raymond) Besta bíómyndin?: Godfather Hvaða tónlist hlustar þú á?: Það er mjög misjafnt en uppáhaldshljómsveitin er U2 Uppáhaldsútvarpsstöð?: Bylgjan og stöðin á 89,5 Uppáhaldsdrykkur?: Gazza (2 ferskjusnafsar og lemon breezer) Ertu hjátrúarfullur fyrir leiki (ef já, hvernig þá?): Nei Hvernig er best að pirra andstæðinginn?: Það er auðvitað best ef maður er honum fremri í öllum aðgerðum, en annars hugsa ég ekki um að pirra andstæðingana heldur að vinna leikina og að ég spili eins vel og mér er unnt. Hvaða liði myndir þú aldrei spila með?: Mér er ekki illa við neitt félag. Það snýst frekar um hvernig liðið/þjálfarinn vill spila fótbolta og hvort maður hefur trú á að manni líði vel hjá félaginu og í bænum. Hvert var átrúnaðargoð þitt á yngri árum?: Í æsku var það danskur leikmaður sem heitir Søren Lerby og þegar hann hætti byrjaði ég að halda meira og meira upp á Diego A. Maradona sem ég tel hafa verið besta knattspyrnumann í heimi. Erfiðasti andstæðingur?: Ebbe Sand eða Jesper Grønkjær. Það var meðan þeir spiluðu ennþá í Danmörku. EKKI erfiðasti andstæðingur?: Ég veit það hreinlega ekki. Besti samherjinn: Ivan Nielsen, gamall landsliðsmaður Dana sem hefur spilað í Hollandi í mörg ár. Hann kenndi mér mikið, að hluta til með því að leika með mér en einnig vegna þess að hann talaði mikið við mig um þá hluti sem ég þurfti að bæta og þá hluti sem ég var góður í og það hef ég notað mikið síðar á ferlinum. Ég var um 20-22 ára á þeim tíma sem við lékum saman. Sætasti sigurinn?: Ef átt er við á þeim tíma sem ég hef leikið með FH er það líklega gegn Val á útivelli þar sem við lentum undir í tvígang og unnum samt 3:2. Ég nefni þann leik vegna þess að mér fannst við áttum erfitt uppdráttar í leiknum og lentum í vandræðum með að skora og þeir skoruðu ódýr mörk (m.a. hæpna vítaspyrnu) en við börðumst til sigurs að lokum. Mestu vonbrigði?: Mestu vonbrigðin með FH var síðasti leikur gegn Fram þar sem við töpuðum 1:0 en með sigri hefðum við komist í annað sæti og ég held að við séum með umtalsvert betra lið en greinilega ekki þennan dag. Uppáhalds lið í enska boltanum: Manchester United Uppáhaldsknattspyrnumaður?: Hjá United er það líklega van Nistelrooy. En uppáhaldsleikmaðurinn minn er Zidane hjá Real Madrid. Besti íslenski knattspyrnumaðurinn fyrr og síðar?: Það hlýtur að vera Guðjohnsen hjá Chelsea Efnilegasti knattspyrnumaður landsins?: Við höfum nokkra mjög efnilega í öðrum flokki FH. Emil og Pétur geta náð langt ef þeir hafa rétta hugarfarið. Emil hefur leikið með meistaraflokki en þarf smá aðlögun að úrvalsdeildinni. Fallegasti knattspyrnumaðurinn í Landsbankadeildinni?: Ég hef nú ekki velt þessu sérlega fyrir mér en Allan Borgvardt hlýtur að vera góð uppástunga. Fallegasta knattspyrnukonan? Ég hef ekki séð svo mikið af kvennaknattspyrnu svo það er erfitt að dæma en mér sýnist vera nokkrar fallegar í KR. Grófasti leikmaður deildarinnar?: Mér finnst ekki vera neinn einn leikmaður sem hefur verið grófari en aðrir af þeim sem við höfum leikið gegn. Það eru þó nokkrir hjá ÍA og ÍBV sem hafa spilað nokkuð gróft en ég man því miður ekki nöfn þeirra. Sverrir Garðarsson hjá FH er líka nokkuð harður nagli. Besti íþróttafréttamaðurinn?: ??? EKKI besti íþróttafréttamaðurinn?: ??? Hver er mesti höstlerinn í liðinu: Það held ég að hljóti að vera markvörðurinn okkar Daði. Hefurðu skorað sjálfsmark: Já ég hef einu sinni gert sjálfsmark en við enduðum sem betur fer sem sigurvegarar í þeim leik. Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Ég man vel eftir fyrsta leiknum sem ég og Allan lékum með FH. Það var æfingarleikur gegn ÍBV í apríl. Það var meiri vindur/stormur en við vorum vanir í Danmörku og þar að auki var hitastigið um 2-3 gráður í mínus og það var snjór á vellinum. Allan og ég vorum víst ástæðan fyrir því að leikurinn fór fram en auðvitað hefði átt að aflýsa honum. Ég skynjaði ákveðna óánægju hjá samherjum okkar. Við lentum líka 5:1 undir en skoruðum tvö mörk í byrjun seinni hálfleiks (frá Allan) en dómarinn varð að flauta leikinn af 20 mínútum áður en hann hefði átt að enda vegna þess að það kom haglél og svo snjókoma og leikurinn endaði 5:3. Hinir í liðinu áttu ekki von á að sjá meira til okkar, héldu að veðrið myndi hræða okkur burt. Það munaði líka minnstu að það gerði það en við þekktum sem betur fer Íslending hjá gamla félaginu okkar í Danmörku sem sagði okkur að veðrið yrði skárra svo við enduðum með að skrifa undir samningin, trúlega mest vegna hans. Spilarðu CM (tölvuleikinn)? Mjög lítið. Mér finnst það vera tímaeyðsla og leiðinlegt en þegar ég leik mér þá er það bara golf eða kappakstursleikir. Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaflokki? Ég lék minn fyrsta leik í efstu deild 21. árs. Eru FH-ingar byrjaðir að ræða við þig um nýjan samning fyrir næsta sumar? Við höfum aðeins rætt málin og ég held að þeir vilji fá mig hingað aftur og ég hef sjálfur áhuga á því. Ég ætla samt aftur heim og finna út hvort ég ætli að finna mér annan starfsvettvang eða spila fótbolta í nokkur ár í viðbót. Kemur til greina af þinni hálfu að leika hér á Íslandi aftur næsta sumar? Já ég gæti vel hugsað mér það. Mér hefur fundist gaman að spila á móti nýjum liðum og öðrum leikmönnum en ég hef vanist í Danmörku. Á sama tíma hef ég prufað að búa í öðru landi með öllu sem því fylgir. Myndirðu íhuga að fá þér íslenskan ríkisborgararétt til að verða gjaldgengur í íslenska landsliðið? Nei vegna þess að mér þætti það rangt og of auðvelt að skipta um ríkisborgararétt og það gefur ekki rétta mynd af því hvernig landið stendur í viðkomandi íþróttagrein. Ég er líka of „þjóðernissinnaður” til að skipta. Hvernig finnst þér íslenska deildin? Mér finnst þetta almennt séð gott mót að spila í en að sumir þjálfarar landsins geri of lítið úr því að spila fótbolta. Það er lögð mikil áhersla á að sparka boltanum út úr vörninni og upp á stóran sóknarmann í staðin fyrir að spila svolítið meira uppbyggilega knattspyrnu með bæði löngum og stuttum sendingum fram völlinn. Áttu þér uppáhaldsmark? Nei, þau hafa svo sem verið mikilvæg sum hver en kannski svolítið „leiðinleg” þar sem þau hafa öll verið úr vítaspyrnum. Hvað ertu menntaður? Ég hef tekið verslunarpróf (købmandsuddannelse) í dönskum verslunarskóla og var sölumaður í nokkur ár eftir það áður en ég varð atvinnuknattspyrnumaður í Danmörku. Kemst íslenska landsliðið á EM 2004? Já, ég held það. Það verður þó, eftir því sem ég kemst næst að vinna annan af tveimur leikjum sínum gegn Þýskalandi en það verður víst ekki auðvelt. En mér finnst Þjóðverjarnir ekki eins ógnvekjandi og oft áður, en þeir voru þó í úrslitum á HM svo þeir geta nú eitthvað. En ég vona að Íslendingar komist á EM, það gæti verið gaman, sérstaklega ef Danmörk kemst líka með og ef til vill gætu löndin dregist saman. |