FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH Grindavík

Tweets

Fótbolti.net

Viðtal við Loga Ólafsson
fhingar@fhingar.net    Fim, 25. september 2003   
Við höfðum samband við FH-inginn Loga Ólafsson sem þjálfað hefur bæði FH og ÍA og lögðum fyrir hann nokkrar spurningar. Hvernig finnst þér FH hafa spilað í sumar?
Eftir fremur dapurt undirbúningstímabil og lélegan árangur í Deildarbikarnum þá hefur liðið vaxið og dafnað eftir því sem liðið hefur á mótið. Styrkur þjálfaranna kom í ljós og þeim tókst að berja liðið saman og góð úrslit í upphafi mótsins færði liðinu sjálfstraust. Að vísu komu leikir sem gengu ílla eins og gengur og gerist. Sérstaklega þegar liðið átti möguleika á að blanda sér fyrir alvöru í baráttuna um titilinn. Þegar litið er á árangur liðsins í heild þá er hann frábær, annað sæti í Landsbankadeildinni og Vísabikarinn „innan seilingar“ er mun betra en bjartsýnustu menn þorðu að vona. Leikir liðsins hafi margir verið skemmtilegir og verið gaman að fylgjast með liðinu í þeim leikjum, en inn á milli datt liðið niður og leikir liðsins álíka spennandi og sjónvarpsþátturinn „Maður er nefndur“ eins og Leifur Helgason orðaði það. Það er mjög mikilvægt að vinna slíka leiki og er það einkenni liða sem ná góðum árangri eins og FH hefur gert nú þegar. Niðurstaðan er að leikmenn, þjálfarar og stjórnin eiga heiður skilinn, en mega ekki láta deigan síga.

Hverjir eru styrkleikar liðsins?
Liðsheildin er helsti styrkleiki liðsins, andinn, vinnumórallinn og metnaðurinn eru mikilvægir þættir og leikmenn gera sér grein fyrir hvað þarf til. Það er gott jafnvægi í liðinu og leikmenn bæta hvern annan upp og eru tilbúnir gera manninn við hliðina á sér betri. Leikmennirnir þekkja sín takmörk og spila einfaldan og árangursríkan fótbolta. Vörn liðsins hefur verið vel skipulögð frá fremsta til aftasta manns og þegar liðið kemst á skrið í sóknarleiknum standast fá lið þeim snúning enda liðið skorað mest allra liða í Landsbankadeildinni. Leikmannahópurinn er skipaður góðri blöndu reyndra og ungra manna, þetta er hópur sem búinn er að vera saman síðan árið 2000, kjarninn hefur haldist. Styrkleikamerki liðsins er einnig hversu góðir félagar þeir eru utan vallar og finnst gaman að hittast og gera sér glaðan dag en allt í hófi.

Hvað með þá spá sem liðið fékk fyrir tímabilið?
Sparkfræðingar, spekingar og fjölmiðlungar voru ekki bjartsýnir fyrir hönd FH áður en tímabilið hófst. Ástæðurnar eru auðvitað framganga liðsins í Deildarbikarnum þannig að sú spá sem liðið fékk var að mörgu leyti eðlileg. Þjálfarar og leikmenn tóku hins vegar rétt á málunum og nýttu sér hrakspár á jákvæðan hátt og liðið tók sig á og þar talar árangurinn í deildinni og bikarnum sínu máli. Ástæður viðsnúningsins eru efa lítið að leikmenn komust í betri æfingu og þeir sem voru meiddir komust á legg á ný. En það sem skipti hins vegar mestu máli er sendingin frá Danaveldi sem er væntanlega sú besta frá því landi síðan Vædderen kom með konungsbók Eddukvæða í apríl 1971. Þeir hafa staðið sig með afbrigðum vel og breyttu gangi mála hjá liðinu.

Við hverju býstu af FH í úrslitunum 27. september?
FH og ÍA eru mjög áþekk lið og eflaust verður hart barist. Hefðin er hjá ÍA þeir hafa unnið bikarinn átta sinnum og leikið til úrslita sautján sinnum. FH hefur ekki gengið vel með Skagann, unnu síðast á seinni hluta síðustu aldar eða nánar tiltekið 1990, en einhver jafntefli hafa litið dagsins ljós. Hins er það bæði gömul saga og ný að það styttist í sigur eftir því sem töpin verða fleiri. FH-ingar hafa harma að hefna, oft á tíðum hafa sigrar ÍA verið tæpir og FH-ingar verið rændir sigri. Með réttu spennustigi og dagsformið í lagi, hugarfarið „allt að vinna engu að tapa“ eru FH allir vegir færir. Nú er lag - Hafnfirðingar og aðrir FH-ingar - á laugardag gefst tækifæri til að brjóta blað í sögunni, en til þess þarf stuðning úr áhorfendapöllum. Skagamenn láta ekki sitt eftir liggja og styðja sína menn á svona stundu og syngja hátt og snjallt „Kátir voru karlar“. Hafnarfjarðarmafían fer fyrir sínu fólki í stúkunni og þeir slá Dúmbó og Steina við og með yfirburðasigri á pöllunum fylgja strákarnir ásamt Óla og Leifi á eftir. Látum nú hljóma FH-söngva og „Þú hýri Hafnarfjörður“.
 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson