|
Eins þeir sem fylgjast með spjallinu hér vita, þá eru nokkrir stuðningsmenn FH í Belgíu sem taka virkan þátt. Við höfðum samband við þá og báðum að svara nokkrum spurningum. Hér er afraksturinn:
1) Hve lengi hafið þið haldið með FH? Við stofnuðum stuðningsmannaklúbb í fyrra þegar dregið var í UEFA-keppnina. Við tókum eftir félaginu og fengum áhuga. Við verðum að viðurkenna að við vorum forvitin að vita hvað stæði á bak við nafnið og hvernig félaginu tókst að komast í keppnina. Svo við fórum að leita upplýsinga og ákváðum að halda með félaginu, enda frábær árangur að komast í UEFA-keppnina.
2) Hvers vegna fóruð þið að halda með FH? Við teljum að sem áhugafólk um fótbolta þurfum við að halda með félögum frá öðrum löndum, sérstaklega ef þau dragast gegn belgískum liðum einhvern tímann. Það er góð tilhugsun fyrir ykkur að vita að ef þið leikið í Belgíu verðið þið með fólk á ykkar bandi þar.
3) Getið þið fylgst með úrslitum FH? Við fylgjumst með úrslitum á stuðningsmannavefnum. Eftir smá stund tókst okkur að rata auðveldlega um vefinn. Það er gaman að sjá að liðið hefur enn ekki tapað á undirbúningstímabilinu. (Þetta barst áður en FH tapaði gegn HK á dögunum. Innsk. ritstj.)
4) Hafið þið séð einhverja leiki með FH eða hafið þið í hyggju að reyna að komast á leik? Við höfum ekki séð FH spila (ef mörkin sem fleyttu FH áfram í UEFA-keppninni eru undanskilin sem við sáum á Netinu). Okkur langar að reyna að heimsækja ykkur. Við höfum séð að bærinn er ekki langt frá Reykjavík svo það ætti að vera hægt að komast á milli.
5) Hvernig er að vera stuðningsmaður FH? Ja, það er mjög skemmtilegt að sjá viðbrögð fólks í Belgíu þegar við segjumst halda með íslensku liði. Við höfum FH-merki á borðunum okkar og margir samstarfsmenn okkar spyrja okkur út í þau. Flestir stuðningsmanna FH vinna hjá sama fyrirtæki „Proximus“ (fyrsta farsímafyrirtækið í Belgíu). Við höldum einnig með belgískum liðum svo við tölum mikið um fótbolta.
6) Hvaða belgískum liðum haldið þið með? Í stuðningsmannaklúbbnum er fólk sem heldur með Anderlecht, Brugge, Standard,Brussels, St Trond og Manang Marsyangdi Club.
7) Hafið þið einhverja skoðun á því hvernig FH gæti orðið enn betra félag? Það er erfitt að segja héðan. Við þyrftum einnig að sjá liðið spila heilt tímabil. En reynið að halda ykkur á jörðinni þrátt fyrir meistaratitilinn á síðasta ári. FH er besta liðið á Íslandi, en við viljum sjá liðið spreyta sig meira í Evrópuboltanum. Þið þurfið því reynslu af Evrópuleikjum og að trúa á að þið getið unnið hvaða lið sem er. |