
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| Einkaviðtal við Alexander Toft Söderlund | |
|
|
Nafn og fæðingarstaður? Alexander Toft Søderlund , fæddur Haugesund/Noregi 03.08.1987,einhleypur og barnlaus Hvenar byrjaðirðu að æfa fótbolta? Ég byrjaði að æfa fótbolta þegar ég var um 5 ára gamall. Hvenar spilaðirðu þinn fyrsta leik? Fyrsti alvöru leikurinn minn var með uppeldisliðinu mínu Stegaberg IL. Það er lítið félag í mínum heimabæ, pabbi var þjálfarinn minn frá 6 ára aldri og hann þjálfaði mig þangað til ég var 16 ára, þannig að ég á honum margt að þakka. Með hvaða liðum hefurðu spilað? Stegaberg IL frá 5-16 ára, FK Haugesund 16 – 18 ára Vard Haugesund 18 – 21 árs FBC Treviso Juni 2008 - Namur (belgium) Ég fór á láni til Namur í Belgíu í September og var þar í 2 mánuði en ég spilaði aðeins 3 leiki vegna meiðsla en núna spila ég með FH :) Hvert er uppáhalds liðið þitt? Ég er Liverpool maður Einhverjir sérstakir leikmenn í uppáhaldi? Steven Gerrard og Thierry Henry Hvenar heyrðirðu fyrst um áhuga FH á þér?Það var í gegnum umboðsmanninn minn, ég var að leita eftir félagi til að fara á láni og hikaði ekki að koma til FH þegar tækifærið bauðst. Vissirðu eitthvað um íslenska boltann áður en þú komst hingað? Ég vissi þónokkuð, ég hafði heyrt um FH útaf Evrópukeppninni og einn af mínum vinum og tengiliðum hér á landi Stig Krohn Haaland sagði mér að FH væri gott félag fyrir unga leikmenn. En af hverju ákvaðst þú að ganga í raðir FH? Í fyrsta lagi til að hjálpa FH að vinna titilinn og kannski að fá tækifæri til að spila í Evrópukeppninni. Ég vil bæta mig sem leikmaður og eins og ég sagði áðan þá er þetta félag gott fyrir unga leikmenn. Ég hef verið að koma úr meiðslum og ég þarf að spila leiki og æfa vel. Hvað finnst þér um æfingaðstöðuna á Íslandi í samanburði við Noreg? Æfingaðstaðan á íslandi finnst mér mjög góð og það eru mun fleiri innanhúsvellir hér en þaðan sem ég kem í Noregi. En í samanburði við stóru félögin í Noregi þá eru félögin á Íslandi frekar langt á eftir. Hvernig er æfingaprógrammið þitt? Ég reyni að æfa tvisvar á dag ef það er hægt, ef það er ekki æfing með þjálfara þá fer ég í ræktina og æfi þar. Ég syndi líka mikið og að slaka á í heita pottnum er ekki það versta eftir góða æfingu Hvernig líkar þér lífið í Hafnarfirði? Ég er mjög ánægður hérna, bærinn er mjög kósý lítill staður líkt heimabænum mínum í Noregi, þannig að ég er hæstánægður hér. Ég er ekkert sérlega hrifin af stórum stöðum . Hvað geriru í frítíma þínum? Ég reyni að taka því rólega í frítíma mínum, þar sem maður er knattspyrnumaður er mikilvægt að hvílast mikið. En eins og hver annar þá finnst mér skemmtilegt að vera með vinunum og fara í bíó og þessháttar, hljómar kannski leiðinlega en ég er frekar rólegur á því. Hvernig fótboltaskó finnst þér best að nota? Ég ætti kannski að segja Adidas því þeir eru styrktaraðilar okkar :) en ég verð að segja Nike Mercurial Vapor. Ég hef spilað í þeirri tegund af skóm í 10 ár þannig að það er erfitt að venjast einhverju öðru Hvað hefurðu heyrt um stuðningsmenn FH? Ég hef reyndar ekki heyrt mikið um stuðningsmennina, ég hef einungis séð myndir, en þar sem Íslendingar eru komnir af víkingum, vona ég að þeir séu bara nógu brjálaðir :) Hefurðu sett þér einhver markmið til að ná með liðinu í sumar? Í fyrsta lagi vil ég forðast meiðsli, ég hef lent mikið í meiðslum undanfarið, þannig að ég vona að meisðslin séu að baki. Mitt persónulega markmið er að spila eins marga leiki og hægt er og koma minni getu á hærra plan, annað markmið er að vinna minn fyrsta meistaratitil. Ég hef aldrei unnið stóran bikar í boltanum þannig að ég vona að sá tími sé að nálgast, það verður einnig gaman að fá að spila í Evrópukeppninni Þú meiddist gegn Fylki í Lengjubikarnum, verðurðu tilbúin í fyrsta leik? Ég á við smávægileg meiðsli í aftan í læri, ég er samt fínn í augnablikinu, þannig að ég er klár, en ég veit ekki hvort ég muni byrja leikinn á móti Keflavík. Það er kannski of snemmt. Ertu hægri eða vinstri fótar maður? Ég er hægri fótar, en ég get alveg notað vinstri, hún er ekki jafn góð kannski, en ég á í engum vandræðum með að nota vinstri fótinn. Þú spilaðir vinstra megin í 4-3-3 kerfinu í Lengjubikarnum, líður þér jafnvel í þeirri stöðu og sem fremsti maður? Reyndar er ég í engum vandræðum með að spila vinstra megin, ég hef spilað mikið í þeirri stöðu, þannig að ég kann vel að spila þá stöðu, ég tel það mjög mikilvægt að geta spilað fleiri en eina stöðu því það gerir mann að betri leikmanni, ég verð líka að segja að svo framarlega sem ég fæ að spila, þá spila ég hvar sem að þjálfarinn biður mig um að spila. Þegar ég var yngri spilaði ég alltaf sem fremsti maður og það var mín uppáhaldsstaða. Í dag er mér nokkuð sama hvort sem ég spila vinstra, hægra megin eða sem fremsti maður. Ég get einnig spilað framarlega á miðjunni, í Belgíu spilaði ég einmitt í þeirri stöðu. Takk fyrir Soder og gangi þér vel. “ Takk sömuleiðis, sjáumst á vellinum, Áfram FH” Ég hafði síðan samband við Söderlund eftir leik og spurði hann hvort hann hafi spilað í svo slæmu veðri áður og hann hafði þetta að segja Ég er frá vestur Noregi þannig að ég hef upplifað mikið af slæmu veðri yfir vetrartímann en það lagast yfirleitt þegar tímabilið fer er að hefjast. Ætli ég hafi ekki spilað einu sinni eða tvisvar í verra veðri en í gær. Það er lítið hægt að gera við því, maður stjórnar ekki veðrinu þannig að maður verður bara að gera sitt besta. Ég var ánægður með stuðningsmenninna. Það hjálpar mikið þegar sungið er á pöllunum og ég var ánægður með stuðningin í gær. Vonandi sjáum við enn fleiri á vellinum næsta fimmtudag á móti Fram. |