|
Sendum Hrafnkatli styrk |
|
Árni Rúnar Karlsson
Sun, 20. desember 2009 |
|
|
Eins og flestum er kunnugt lenti vinur okkar og FH-ingurinn Hrafnkell Kristjánsson í alvarlegu umferðarslysi sl. föstudag. Hrafnkell liggur nú þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans. Hann þarf á öllum okkar stuðningi og hlýjum hugsunum að halda í þessari baráttu.
Við hvetjum alla FH-inga, vini og aðra sem vilja sýna Hrafnkatli stuðning að mæta í Kaplakrika í kvöld kl. 20. Þar geta menn fengið friðarkerti sem þeir kveikja á og setja út á Kaplakrikavöll þar sem við myndum ljósahaf vonar og samstöðu.
|