|
Kristján Gauti hugsanlega á leið til Liverpool |
|
Árni Rúnar Karlsson
Fim, 03. desember 2009 |
|
|
FHingar.net hafa fengið staðfest að viðræður hafi farið fram á milli FH og Liverpool um að Kristján Gauti gangi til liðs við síðarnefnda félagið.
Kristján Gauti er aðeins 16 ára gamall og kom inn í aðallið FH síðasta sumar og spilaði 3 leiki og þar af 1 í byrjunarliðinu gegn Þrótti. Kristján Gauti hefur spilað með U17,U18 og U19 ára landsliðum Íslands og skorað 5 mörk fyrir U17 ára liðið í 7 leikjum og 1 mark fyrir U18 ára liðið í 3 leikjum. Kristján Gauti er enn einn efnilegi leikmaðurinn sem kemur upp úr glæstu unglingastarfi okkar FH-inga og er greinilegt að mikil og góð vinna er unnin þar á bæ. Einn Íslendingur Guðlaugur Victor Pálsson spilar með Liverpool og er fyrirliði varaliðs þeirra. |