FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH 1 Grindavík 1

Tweets

Fótbolti.net

Dennis Siim yfirgefur Fimleikafélagið
Anton Ingi Leifsson    Mið, 04. nóvember 2009   

Dennis Siim, hinn geysisterki Dani sem hefur verið öflugur í liði FH síðastliðin ár hefur yfirgefið félagið, en þetta eru persónulegar ástæður segir Siim við Fótbolti.net. Dennis segir að þetta sé kærustunna vegna.

 

Siim var að renna útaf samning og höfðu hann og FH verið í viðræðum um nýjan samning, en kærasta Danans fékk gott atvinnutilboð ytra frá og flytur hann með henni þangað. Dennis kom hingað til lands í byrjun ársins 2005 og hefur verið í FH alla tíð síðan. Í sumar spilaði hann sjö leiki í Pepsi-deildinni en hann var mikið frá vegna meiðsla.

Siim er fimmti leikmaðurinn sem FH missir frá félaginu frá nýliðnu tímabili. Tryggvi Guðmundsson fór í ÍBV, Daði Lárusson í Hauka, Siim til Danmerkur, Sverrir Garðarsson var einungis á láni hjá félaginu líkt og Alexander Söderlund. Matthías Vilhjálmsson og Davíð Þór Viðarsson eru svo að reyna fyrir sér erlendis og gætu þeir fengið samninga þar. FH hefur hinsvegar fengið tvo góða leikmenn; Gunnleif Gunnleifsson og Gunnar Már Guðmundsson.

 

- Dennis verður sárt saknað í Krikanum

 

 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson