FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH 1 Grindavík 1

Tweets

Fótbolti.net

Tryggvi Guðmundsson til ÍBV
Árni Rúnar Karlsson    Fim, 22. október 2009   

Tryggvi Guðmundsson hefur ákveðið að söðla um og halda "heim" til Eyja og spila með ÍBV á næsta keppnistímabili. Málið hafði stuttan aðdraganda aðsögn Lúðvíks Arnarsonar varaformanns knattspyrnudeildar FH.

 


"Persónulegar ástæður hjá Tryggva urðu til þess að hann bað stjórn knattspyrnudeild FH um að sér yrðu veitt félagsskipti úr FH í  ÍBV. Að vandlega skoðuðu máli varð stjórn knattspyrnudeild FH í samráði við þjálfara við þeirri beiðni og náðust samningar við ÍBV um félagsskiptinn strax í kjölfarið".

Tryggvi hefur á undanförnum 5 árum spilað með FH og það er ljóst að það er sjónarsviptir af þessum litríka leikmanni.

Aðspurður sagði Lúðvík að auðvitað gerðu menn sér grein fyrir því að mikill missir væri af Tryggva en í þessu tilfelli hefðu einfaldlega aðstæður verið þess eðlis að félagið taldi best fyrir alla aðila að verða við beiðni Tryggva."Félagið og Tryggvi skilja í miklu bróðerni og kunnum við Tryggva miklar og góðar þakkir fyrir frábært framlag hans til fótboltans í FH á undanförnum árum og óskum honum góðs gengis á nýjum vettvangi" sagði Lúðvík að lokum.

 

 Við hjá FHingar.net þökkum Tryggva fyrir tímann sem hann var hjá FH og óskum honum góðs á nýjum stað.

 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson