FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH Grindavík

Tweets

Fótbolti.net

Skilaboð til Hauka "hættið þessu væli"
Jónas Ýmir Jónasson    Þri, 13. október 2009   
Vodafone völlurinn

Vodafone völlurinn

Það er með ólikindum að lesa viðtal fotbolti.net við Heimir Heimisson varaformann Hauka þar sem hann tjáir sig um að FH hafi hafnað því að Haukar spili á Kaplakrika.  Í fyrsta lagi kæru haukamenn þá hafi þið aldrei nokkurn tímann lagt neinn kraft í fótboltann.  Hvorki fyrr né síðar! 

Ef ég nefni t.d. eitt dæmi þá voru Haukar með efnilegan 2.Flokk fyrir um 20 árum síðan, leikmenn eins og Ólafur Kristjáns, Hlynur Eiríks, Valur Jó og fleiri voru í Haukum þá,  en í stað þess að byggja upp misstu þið þessa stráka sem fóru auðvitað í félag sem vildi eitthvað fyrir þá gera. FH.  Held að Haukar ættu að eyða aðeins minna í leikmenn og laun í handboltanum og fara í uppbyggingu á fleiru en því.

Fyrsti kostur Hauka hefur ávallt verið handboltinn, aldrei nokkurn tíman fótboltinn.  Svo núna þegar þið farið í efstu deild kæru Haukamenn þá á bara að breyta öllu eftir ykkar hag og ef það er ekki gert þá eru bara  FHingar í bæjarstjórn.  Heimir vill að þetta verði sameiginlegur völlur bæjarins og undrast af hverju það hafi ekki verið gert fyrr, Þvílík vitleysa

Bæjarstjórinn Lúðvík Geirsson hafði þetta að segja í samtali við Fréttablaðið  "Fulltrúar bæjarins voru aldrei kallaðir til í þessari umræðu og því út í hött að halda því fram að vilji bæjarins hafi ekki verið fyrir hendi," segir Lúðvík og bætir við: „Það er annars alfarið Haukanna að ákveða hvaða leiðir þeir vilja fara og þeir ákváðu að gera samning við systurfélag sitt Val."

Það er hreint með ólikindum að hlusta á þetta haukavæl í öllum fjölmiðlum landsins en það er aldrei minnst orði á það að hugsanlega tóku valsmenn þeim "Opnum Örmum" því þeir eiga völl sem er upphitaður og með vökvunarkerfi.  Þetta gerir þeim kleift að vökva völlinn á skömmum tíma, plús það að Valsmenn fá borgað fyrir að lána þeim heimavell sinn.  Og það er einnig vert að geta að vallarstjórar FH þeir Birgir Jóhannsson og Sigmundur Ástþórsson og þeirra frábæra aðstoðarlið, menn eins og Anton Leifs, Gussi Vass og Bjössi Berg vökvuðu völlinn í sumar nánast daglega og þar er ekkert sjálfvirkt vökvunarkerfi eins og á Hlíðarenda. 

Þetta er afar barnalegt væl og algerlega með ólikindum en það kemur mér svosem ekki á óvart.  Þetta eru jú Haukar...........


 

 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson