FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH Grindavík

Tweets

Fótbolti.net

TG verður áfram í FH
Árni Rúnar Karlsson    Mán, 12. október 2009   

Vegna þráláts orðróms um að TG sé að yfirgefa herbúðir FH þá höfðum við samband við kappann og spurðum hann nokkra léttra spurninga um þessi mál. Smellið á "lesa meira" til þess að sjá hvað TG hafði að segja.

 

Þú hefur verið þrálátlega orðaður við brottför úr krikanum, hvað veldur?

Það sem veldur er hugsanlega bekkjarsetan mín í sumar. Lið halda kannski að það sé auðvelt að fá mig núna þar sem að ég spilaði frekar lítið 2009 miðað við öll önnur ár.

ÍBV og Haukar hafa haft samband við FH og spurst fyrir um þig, eitthvað heyrt frá þeim liðum?

 

Ég hef ekkert heyrt frá þessu liðum. Þau fara greinilega réttu leiðina og spyrja FH hvort þau megi ræða við mig.

 

Einnig er KR oft nefnt í þessu samhengi, eitthvað heyrt frá KR?

Ekkert heyrt frá KR. Ég bý í vesturbænum. Elsti guttinn minn er í 6. og 5. flokki félagsins í fótbolta og svo einnig í körfunni., Hin þrjú börnin mín eru svo í íþróttaskóla KR um helgar og því er ég mikið úti í KR og þ.a.l. kannski bendlaður við þá.

Hefurðu talað eitthvað við Heimir eða stjórn FH um þessi mál?

 

Ég átti góðan fund með Heimi  og það er ljóst að ég ætla að leggja hart að mér í vetur og í vor til að halda mér í byrjunarliði FH á næsta tímabili.

Verður TG ekki bara áfram í Krikanum og landar enn einum titlinum?

TG verður sem sagt áfram í Krikanum og stefnir á tvennuna árið 2010! TG#9 

 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson