FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH 1 Grindavík 1

Tweets

Fótbolti.net

Gunnleifur Gunnleifsson gerir þriggja ára samning við FH
Jónas Ýmir Jónasson    Mið, 07. október 2009   

Stjórn knattspyrnudeildar FH hefur náð samkomulagi við HK og Gunnleif Gunnleifsson um að Gunnleifur gangi í raðir FH.   Gunnleifur gerir þriggja ára samning við FH.  Félagið fagnar því að fá jafn sterkan leikmann og Gunnleif í sínar raðir og væntir mikils af honum.

Jafnframt er ljóst að Daði Lárusson sem verið hefur fyrsti markvörður félagsins undanfarin 14 keppnistímabil mun verða leystur undan samningi við
félagið í samráði við hann sjálfan.  Stjórn knattspyrnudeildar vill nota
tækifærið og þakka Daða fyrir frábæra þjónustu við félagið, þar sem hann
hefur verið lykilmaður í öllum þeim fjölda titla sem félagið hefur unnið á
síðustu misserum.   Daði er frábær markvörður og frábær félagsmaður sem á
að baki glæstan feril og unnið til allra æðstu metorða sem hægt er að vinna
í íslenskri knattspyrnu.   Daða óskum við alls hins besta, hér eftir sem
hingað til.

Virðingarfyllst.
Stjórn knattspyrnudeildar FH 

 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson