FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH 1 Grindavík 1

Tweets

Fótbolti.net

Upphitun: FH - Valur, Pepsi-deildin
Árni Freyr Helgason    Lau, 19. september 2009   

Þetta er upphitun fyrir leik FH-inga og Valsmanna sem að fram fer á Kaplakrikavelli sunnudaginn 20. September, þ.e.a.s. á morgun. Hefst leikurinn kl. 17:00 og við hvetjum ALLA til að mæta! Ef leikurinn endar með sigri FH-inga þá er Íslandsmeistaratitillinn tryggður.

 

Valur
Valsmenn sitja í 8. Sæti Pepsi-deildarinnar með 25 stig. Þeir hafa skorað 24 mörk en fengið á sig 36. Sigrar liðsins eru 7, jafnteflin fjögur og töpin eru níu.

Valsmenn hafa verið á milli tanna fólks reglulega þetta tímabilið og eru ástæðurnar fyrir því margar. Þjálfaraskipti liðsins á miðju tímabili komu mörgum á óvart þar sem að þeir höfðu komist á gott skrið áður en Willum Þór var rekinn. Ljóst er að þessi þjálfaraskipti hafa lítið hjálpað Valsmönnum, þeir hafa einungis unnið 2 leiki eftir ráðningu Atla Eðvaldssonar, gegn KR (4-3) og gegn Þrótti R. (1-0).

Fyrri leikir liðanna
Síðasti leikur liðanna var á Vodafone-vellinum þann 2. Júlí síðastliðinn. Þar fóru FH-ingar með öruggan sigur af hólmi, 5-0.

19.6.1992 FH 0 – 1 Valur Efsta deild (Samskipadeildin)
04.9.1993 FH 1 – 1 Valur Efsta deild (Getraunadeildin)
04.8.1994 FH 0 – 1 Valur Efsta deild (Trópídeildin)
14.6.1995 FH 2 – 3 Valur Efsta deild (Sjóvá-Almennra deildin)
19.6.2001 FH 1 – 0 Valur Efsta deild (Símadeildin)
29.5.2003 FH 4 – 0 Valur Efsta deild (Landsbankadeildin)
21.8.2005 FH 2 – 0 Valur Efsta deild (Landsbankadeildin)
16.7.2006 FH 1 – 2 Valur Efsta deild (Landsbankadeildin)
23.9.2007 FH 0 – 2 Valur Efsta deild (Landsbankadeildin)
13.9.2008 FH 3 – 0 Valur Efsta deild (Landsbankadeildin)

Í þessum leikjum hefur FH fjórum sinnum borið sigur úr býtum, Valur 5 sinnum og einu sinni hafa liðin gert jafntefli.

FH
FH situr í efsta sæti deildarinnar með 47 stig. Liðið hefur skorað 54 mörk en fengið á sig 20, hafa skorað flest mörk í deildinni en fengið fæst á sig.

Okkar menn eru væntanlega komnir á sigurbraut á ný eftir frekar dapurt gengi nýverið. Sigur liðsins gegn ÍBV um síðustu helgi undirstrikaði þetta, en sá leikur fór 5-0 fyrir okkar menn. Margir sterkir leikmenn snéru á ný í lið FH-inga og áttu stóran þátt í sigrinum. Þar sást á ný hinn frábæri fótbolti FH-liðsins eftir nokkurt hlé og ætlum við rétt að vona að hann sé kominn til að vera.

Daði Lárusson var ekki með í leik FH-inga gegn Eyjamönnum um síðustu helgi vegna meiðsla. Ég býst fastlega við því að hann snúi aftur í lið FH-inga gegn Val. Þá var Davíð Þór Viðarsson í leikbanni en hann verður án efa í liðinu á morgun.

 FH verður Íslandsmeistari ef sigri er náð. Liðið mun einnig slá stigamet í deildinni, kemst í 50 stig og slær þar með við fyrra metinu, sem er eign Skagamanna og stendur í 49 stigum. Ef sigur næst ekki, eiga KR-ingar möguleika á að minnka muninn niður í 2 stig og þar með eykst spennan í deildinni enn frekar, en það viljum við að sjálfsögðu ekki sjá! 

 

Hugsanlegt byrjunarlið FH:
Daði
Pétur Viðars - Tommy - Dennis - Hjörtur Logi
Matthías V - Davíð Þór - Tryggvi Guð
Ólafur Páll - Atli Viðar - Atli Guðna

Við viljum hvetja ALLA FH-inga til að mæta á morgun og styðja okkar lið til sigurs. Það hlýtur að vera metnaður allra að landa titlinum á heimavelli, á morgun er fullkomið tækifæri til þess. Annars þarf að blása til sigurhátiðar á Fylkisvelli annað árið í röð, sem að er að sjálfsögðu óásættanlegt!

Leikskrá leiksins má fina hér.

Áfram FH!
 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson