
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| Á þessum degi fyrir 5 árum! | |
|
|
19.September verður ávallt merkisdagur í hugum okkar FHinga. Árið 2004 var Fimleikafélag Hafnarfjarðar 75 ára og á Sunnudeginum 19.September það ár vann FH sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil. Það þekkja allir FHingar tilinninguna að vinna bikar í fyrsta sinn og þessi sunnudagur var einn besti dagur sem undiritaður hefur upplifað. Allt frá rútuferðinni snemma um morgunin, mögnuð stemmning á Ráðhústorginu á Akureyri fyrir leik og ótrúlegasta andrúmsloft sem maður hefur upplifað á knattspyrnuleik fyrr og síðar. Á sömu sekúndu og fréttir bárust að FH væri orðið Íslandsmeistari, horfði maður niðrá völl og þá þrumaði Ásgeir Gunnar Ásgeirsson boltanum í netið og tryggði FH 2-1 sigur gegn KA. Ásgeir fagnaði markinu með að stökkva uppí stúku til okkar. Þvílík tilfinning! Það er ótrúlegt að hugsa til þess að á morgun eigum við FHingar möguleika á að vinna okkar fimmta íslandsmeistaratitil á aðeins fáeinum árum. Við hvetjum alla FHinga og Hafnfirðinga til að láta sjá sig á vellinum á morgun og mæta einnig snemma á Pizza Islandia þar sem góðir gestir mæta á svæðið. Við lofum magnaðri stemmningu á morgun, komdu á völlinn og upplifðu með okkur FH stemmningu eins og hún gerist best. Þetta stutta 14 sekúnda myndskeið var tekið fyrir leik FH og KA á Akureyri árið 2004
|