
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| Pepsi Deildin: Tveir leikir á dagskrá í dag | |
|
|
Tveir leikir eru í Pepsi Deildinni í dag, Keflavík - Grindavík annars vegar og Breiðablik - KR hinsvegar. En FH getur tryggt sér íslandsmeistaratitilinn í kvöld ef KR misstígur sig á útivelli gegn Breiðablik. Leikurinn er kl 17:30 á Kópavogsvelli. Eins og staðan fyrir leikinn í dag þá hefur FH leikið 20.leiki í deildinni, eru með 47 stig og 36 mörk í plús. KR er í öðru sæti með 39 stig og 18 mörk í plús, þeir eiga einn leik til góða sem þeir spila eins og áður segir í kvöld gegn Breiðablik. KR spilar síðan við Stjörnuna á heimavelli á sunnudag og lokaleikur þeirra er gegn Val á útivelli þann 26.September. Það má aldrei fagna of snemma og ég hvet fólk til að hunsa fjölmiðla þegar þeir segja að við séum komnir með 9 fingur á titilinn. Fjölmiðlar sögðu nánast frá byrjun að mótið væri búið en þeir virðast ekki átta sig á því að ekkert er unnið fyrirfram. Það eina sem við FHingar eigum að hugsa um er leikurinn á sunnudag gegn Val. Með sigri þar erum við orðnir meistarar. En til gamans má geta þess að á þessum degi 16.September 2006 urðum við Íslandsmeistarar eftir 4-0 sigur á Víkingum.
|