
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| Upphitun: FH - ÍBV, Pepsi-deildin | |
|
|
Þetta er upphitun fyrir leik FH-inga og ÍBV í Pepsi-deild karla sem að fram fer á morgun, sunnudaginn 12. September. Hefst leikurinn kl. 14:10 og hvetjum við alla að mæta þar sem að mikilvægi hans fyrir lið FH er gríðarlegt. ÍBV Eyjapeyjar sitja í 10. sæti með 22 stig eftir 19 leiki. Þeir hafa skorað 21 mark en fengið á sig 31. Sigurleikirnir eru 6 talsins, jafnteflin fjögur og töpin eru níu.
Ljóst er að leikurinn verður ekki auðveldur fyrir okkar menn því Eyjamenn hafa verið á gríðarlegri siglingu í undanförnum leikjum, hafa ekki tapað 6 leikjum í röð eða síðan þeir lágu fyrir Fylki þann 1. júlí! Aldeilis gott skor það.
FH Ljóst er að leikurinn hefur gríðarlegt gildi fyrir lið FH. Vinni þeir leikinn ná þeir með 8 stiga forskoti á KR-inga, sem þó eiga leik til góða, og setja þar með gríðarlega pressu á Vesturbæingana. Tapi þeir leiknum eiga KR-ingar enn von. Leikurinn skiptir ekki eins miklu máli fyrir ÍBV, en þá vantar einungis eitt stig til að tryggja sig uppi. Auk þess verða Fjölnismenn að vinna alla sína leiki til að eiga séns á að halda sér uppi. Lið FH-inga styrkist gríðarlega fyrir leikinn. Björn Daníel, Dennis Siim, Atli Guðna og Tryggvi Guð snúa allir til baka í liðið eftir meiðsli. Davíð Þór verður hins vegar ekki með í leiknum, en hann tekur út leikbann.Líklegt byrjunarlið: Daði Pétur - Dennis - Tommy - Hjörtur Matti V - Björn Daníel - Tryggvi G Ólafur Páll - Atli Viðar - Atli Guðna Eins og kom fram hér áður, þá hefst leikurinn kl. 14:10 á morgun. Hvetjum við alla FH-inga til að mæta í Kaplakrikann að styðja okkar menn, oft var þörf en nú er nauðsyn! ÁFRAM FH!! |