FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH 1 Grindavík 1

Tweets

Fótbolti.net

3 stórleikir hjá yngri flokkunum á morgun!
Guðlaugur Valgeirsson    Fös, 11. september 2009   

Þrír stórleikir fara fram á Kaplakrikavelli á morgun í yngri flokkunum en spilað er í 4 flokki karla, 3 flokki kvenna og 2 flokk karla.

Annar flokkur karla er að spila í deildinni við lið Þórs frá Akureyri en þessi lið eru í 2. og 3.sæti þannig þetta verður hörkuleikur. Ef Þórsarar tapa í dag gegn KR sem eru efstir og FH-ingar vinna þá á morgun eru FH-ingar í 2.sæti. Þjálfarar flokksins eru Everton-mennirnir Ingvar Jónsson og Viggó Briem. Leikurinn hefst kl. 2 !
Þriðji flokkur kvenna spilar á morgun undanúrslitaleikinn í Íslandsmótinu við Fylkir/Leiknir R. en lið FH er firnasterkt og ætla sér alla leið og vinna titilinn. Þjálfarar flokksins eru Davíð Arnar Stefánsson og Pétur Sigurðsson. Leikurinn hefst kl. 12:00 !
Fjórði flokkur karla B-lið spilar úrslitaleik við Stjörnuna á morgun og dugir FH-ingunum jafntefli til sigurs en auðvitað ætla þeir sér sigur en þjálfarar flokksins er Fossvogsbúinn Viggó Briem og Vilhjálmur Kári Haraldsson. Leikurinn hefst kl. 12:00 !


Ekki er vitað á hvaða velli liðin munu spila en stuðningsmenn verða að finna það út. Líklegt er að 2.flokkur kk og 3.flokkur kvk munu spila á miðvellinum og 4.flokkur kk á efsta grasinu hliðina á gervigrasinu. Allir á völlinn!

FHingar.net náðu í skottið á Anton Inga Leifssyni, fyrirliða 4.flokks karla og spurðum hann út í átökin á morgun gegn Stjörnunni. Anton var bjartsýnur á að liðið nái góðum úrslitum.

Blessaður Anton, hvernig leggst leikurinn í þig?

Leikurinn leggst bara mjög vel í mig. Við spiluðum mjög vel gegn Víking(sigur 12-0), en duttum einhvernveginn niður á hælana á móti Fjölni(sigur 3-1). Sendingar voru slakar, en þrjú stig eru þrjú stig og þetta er bara hreinn úrslitaleikur.

Já þú talar um slakan leik gegn Fjölni en voru hreinlega bara ekki aðstæðurnar að gera ykkur erfitt fyrir?

Nei ég segi það ekki, en auðvitað var erfitt að fara frá grasi yfir á gervigras á miðju tímabili, en við erum búnir að æfa á gervigrasi í allan vetur þannig það er engin afsökun. Jújú, það var mígandi rigning en þá bara á ekki að skemma fyrir okkur.

Eru allir heilir fyrir þennan mikilvæga leik?

Já ég held það. Siggi TH meiddist í leiknum gegn Fjölni, en hann fór uppá spítala þegar 20 min voru liðnar af leiknum - en hann ætti að vera klár.

En þú skoraðir eitt mark gegn bæði Víking og Fjölni á ekki að gera gott betur og skora einfaldlega þrennu gegn Stjörnumönnum?

Auðvitað reynir maður alltaf að skora, en við skulum bara sjá til. Maður þarf líka að leggja eithvað upp fyrir þessa kalla og síðan hvet ég alla til að mæta á völlinn og styðja okkur til sigurs.

 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson