|
Áfram FH |
|
Árni Rúnar Karlsson
Mið, 09. september 2009 |
|
|
Hér er smá orðsending frá TG Kæru FH-ingar.Nú fer Íslandsmótið loksins af stað aftur eftir ágæta hvíld. Staðan er einfaldlega þannig að það eru þrír mikilvægir leikir eftir og allt er algerlega í okkar höndum.
Nú er tími til kominn að snúa bökum saman, allir sem einn, og klára mótið eins og sannir sigurvegarar. Það hefur sýnt sig síðustu árin að þegar stemning myndast á pöllunum þá smitast það til okkar leikmanna inn á völlinn og við eflumst við það. Vil ég því skora á alla sem vettlingi geta valdið að mæta á völlinn og styðja við bakið á okkur og um leið skemmta sér á pöllunum.
Ég var nú þess heiðurs aðnjótandi að vera með ykkur í lokaleiknum í fyrra og það var þvílíkt gaman, frábær skemmtun. Er ekki komin tími til að koma þessu öllu á sama „level“ og 2004 - 2008?Við megum ekki detta í þá leiðinlegu gryfju að halda að þetta komi allt af sjálfu sér.Með von um geðveika stemningu í september!!!!
FH Kveðja, TG #9 Þessi má svo geta að TG er klár á sunnudaginn samkvæmt nýjustu upplýsingum og eru það góðar fréttir .Það hefur vantað sigurviljann og geðveikina sem hann hefur og nær að smita út frá sér. Áfram FH
|