
| FH | 0 |
| Fjölnir | 0 |
| Fylkir | 0 |
| Grindavík | 0 |
| Höttur | 0 |
| Leiknir R. | 0 |
| Valur | 0 |
| Þór | 0 |
| 2 flokkurinn í Bikarúrslit!!! | |
|
|
2 flokkur FH komst í kvöld í bikarúrslitin eftir góðan sigur á ÍBV. FH byrjuðu leikinn mjög vel og sóttu mikið en lentu undir þvert gegn gangi leiksins á 18.mínútu eftir hornspyrnu, en FH eiga í miklum vandræðum að verjast föstum leikatriðum. Hinsvegar, aðeins einni mínútu seinna jöfnuðu FH metin þegar Aron Freyr Eiríksson skoraði stórglæsilegt mark en hann tók boltann viðstöðulaust á lofti, yfir markmanninn í vinkilinn, 1-1 eftir aðeins 20.mín og stefndi í veislu. FH komust yfir á 39.mínútu en þar var Aron Freyr aftur á ferðinni með annað glæsilegt mark. Og þeir gerðu enn betur og skoruðu annað fyrir hlé, en þar skoraði Brynjar Benediktsson en markið hans var einnig mjög flott, hann fékk sendingu inn fyrir vörn Eyjamanna og gerði sér lítð fyrir og vippaði yfir markvörð Eyjamanna, staðan 3-1 fyrir FH í hálfleik.Í seinni hálfleik byrjuðu Eyjamenn frábærlega og minnkuðu muninn í 3-2 en þar var að verki, Viðar Örn Kjartansson en hann var valinn efnilegasti leikmaður 1.deildar karla í fyrra þegar hann var hjá Selfossi. FHingar voru grófir og fengu mörg gul spjöld og þegar um það bil 20 mín voru eftir fékk Hafþór Þrastarson fyrirliði sitt annað gula spjald og þar með rautt og voru FH einum færri. Eftir það sóttu ÍBV stíft og misstu FH annan mann af velli um 5-10 mín seinna en ÍBV voru að sækja upp í skyndisókn og Heimir Þór Ásgeirsson tók niður leikmann ÍBV með tæklingu aftan í hann og uppskar beint rautt spjald. FH náðu hinsvegar að halda út og unnu 3-2 og mæta þeir Fylki í úrslitunum en leikurinn verður 27.september klukkan 14:00 en ekki er komið á hreint hvar leikurinn verður. Byrjunarliðið: Arnar Magnús Róbertsson (m), Helgi Valur Pálsson, Árni Björn Höskuldsson, Hafþór Þrastarson fyrirliði, Örn Rúnar Magnússon, Andri Magnússon, Heimir Þór Ásgeirsson, Hákon Atli Hallfreðsson, Gunnar Oddgeir Birgisson, Aron Freyr Eiríksson og Brynjar Benediktsson. Varamenn: Hilmar Ástþórsson, Björn Berg Bryde, Andri Gíslason, Viktor Smári Segatta og Gunnar Páll Pálsson. Áhorfendur: Giska á 200 manns enda FH-dagurinn
|