|
FH - ÍBV umfjöllun |
|
Guðlaugur Valgeirsson
Lau, 29. ágúst 2009 |
|
|
FH og ÍBV mættust í dag í fyrri leik liðanna í undanúrslitum um að komast í Pepsi deild kvenna. Leikurinn stóð ekki undir væntingum og var mikil vonbrigði en jákvætt við leikinn var að liðið hélt hreinu en neikvætt er að liðið náði ekki að skapa sér nægilega góð færi. 0-0 lokastaðan og seinni leikurinn er í Eyjum á miðvikudag.
Fyrsta færi leiksins fengu FH á 4.mínútu þegar Berglind "Bella" Arnardóttir átti skot af 25 metra færi en beint á markvörð ÍBV. FH setti boltann í slánna á 12.mínútu þegar þær fengu aukaspyrnu við hornfánann, Halla Marinós tók spyrnuna og lyfti boltanum í slánna. Leikurinn var nokkuð jafn fyrstu mínúturnar en lítið um færi. Á 25.mínútu átti leikmaður ÍBV gott sko en Birna varði í horn, upp úr horninu björguðu FH á línu. Á 40.mínútu átti leikmaður ÍBV fínt skot en Birna greip boltann örugglega. Staðan eftir fyrri hálfleik var 0-0 Í síðari hálfleik var lítið um færi lauk leiknum með markalausu jafntefli og verður róðurinn því þungur fyrir FH-inga fyrir seinni leikinn í Eyjum á miðvikudaginn.
Maður leiksins: Sigríður Guðmundsdóttir Áhorfendur: um 300-400 manns
Byrjunarlið FH: Birna Berg Haraldsdóttir, Berglind Arnardóttir fyrirliði, Sara Atladóttir, Sigríður Guðmundsdóttir, Sigmundína Sara Þorgrímsdóttir, Hrönn Hallgrímsdóttir, Halla Marinósdóttir, Aníta Lísa Svansdóttir, Guðrún Björg Eggertsdóttir(Alma Gytha Huntingdon-Williams 68'), Jóhanna Steinþóra Gústavsdóttir, Sigrún Ella Einarsdóttir. |