FH0
Fjölnir0
Fylkir0
Grindavík0
Höttur0
Leiknir R.0
Valur0
Þór0

Næsti leikur

Lengjubikar karla - A deild R3
18.02.2012 16:30
Grindavík vs FH
Reykjaneshöllin

Síðasti Leikur

Fótbolti.net mótið - Úrslit
FH 1 Grindavík 1

Tweets

Fótbolti.net

Upphitun: Þróttur - FH, Pepsi-deildin
Árni Freyr Helgason    Lau, 29. ágúst 2009   

Þetta er upphitun fyrir leik FH og Þróttar á Valbjarnarvelli sem fram fer á mánudaginn næsta, 31. ágúst. Leikurinn hefst kl. 18:00. Ljóst er að mikið verður í húfi þar sem að Þróttur verður að vinna leikinn til að eiga séns á að halda sér uppi í Pepsi-deildinni.

 


Þróttur
Köttarar sitja í 12. og neðsta sæti eftir 18 umferðir með aðeins 11 stig. Þeir hafa skorað 20 mörk en fengið á sig 44 talsins. Sigrar liðsins eru 3, jafnteflin eru tvö og töpin eru 13.

Síðasti leikur Þróttara var gegn ÍBV í Eyjum síðastliðinn sunnudag. Þar töpuðu þeir 1-0 í miklum rokleik sem að var eign Eyjapeyja frá A til Ö, en þeir náðu þó ekki að skora fleiri mörk en til þurfti.

Síðasti sigur Þróttara kom gegn Fjölnismönnum 5. ágúst síðastliðinn, á afmælisdegi félagsins. Í þeim leik sýndu þeir merki þess efnis að þeir gætu, á góðum degi, spilað virkilega flottan fótbolta. Þó er varla hægt að efast um vægi brottvísana tveggja Fjölnismanna í þeim leik.

Fyrri leikir liðanna á Valbjarnarvelli/Laugardalsvelli

Síðasti leikur liðanna á heimavelli Þróttar, Valbjarnarvelli, fór fram þann 19. maí 2008. Sá leikur var eftirminnilegur á margan hátt, endaði hann 4-4 en Þróttarar náðu að jafna leikinn einungis tveimur mínútum fyrir leikslok.

14.9.2003 Þróttur 0 – 3 FH Efsta deild (Símadeildin)
15.8.2005 Þróttur 1 – 5 FH Efsta deild (Landsbankadeildin)
19.5.2008 Þróttur 4 – 4 FH Efsta deild (Landsbankadeildin)

FH

FH-ingar sitja á toppi töflunnar með 43 stig. Við höfum skorað 49 mörk en fengið á okkur 20. Sigurleikir liðsins eru 14, eitt jafntefli hefur verið gert og töp liðsins eru þrjú.

FH-liðið kemur hálf vængbrotið til leiks. Liðið tapaði 0-3 fyrir sprækum Grindvíkingum í Kaplakrika um síðustu helgi, úrslit sem að voru vægast sagt óvænt. Þá er ljóst að Dennis Siim verður ekki með liðinu vegna meiðsla. Það er þó ljóst að Atli Guðnason, Björn Daníel og Tryggvi Guðmundsson snúa aftur eftir meiðsli.

Hugsanlegt byrjunarlið FH:
Daði
        Guðni - Pétur - Tommy - Hjörtur
Matthías V - Davíð - Tryggvi
Óli Palli - Atli V - Atli G

Ljóst er að FH-ingar gætu tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í þessum leik, fari svo að þeir sigri og KR-ingar tapi gegn Frömurum. Því er um að gera að mæta í Laugardalinn að styðja okkar menn, oft var þörf en nú er nauðsyn. Áfram FH!
 
 
Vefhönnun | Steinþór Kristinsson