|
FH - ÍBV á morgun! |
|
Guðlaugur Valgeirsson
Fös, 28. ágúst 2009 |
|
|
Meistaraflokkur kvenna í FH leikur einn þýðingarmesta leik sinn á síðustum árum á morgun þegar þær mæta ÍBV í fyrri leik í umspili um að komast upp í Pepsi deild kvenna. Þetta eru undanúrslitin en leikurinn fer fram kl 14:00 í Kaplakrika á morgun en seinni leikurinn er í Eyjum á miðvikudagskvöldið, ef liðið slær út ÍBV, eru þær komnar upp í Pepsi deildina en þær voru seinast í efstu deild árið 2006 og einnig yrði þetta frábært hjá þeim því flestar í byrjunarliðinu eru yngri en tvítugt og yngsti leikmaðurinn í byrjunarliðinu er engin önnur en Birna Berg, 16 ára og er ein af bestu markvörðum Íslands ef marka má landsliðsþjálfara Íslands. Allir að mæta á völlinn og styðja konurnar!!!!!
|